Falleg, rúmgóð og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með góðri verönd í suð/austur átt í þessu vinsæla fjölbýli fyrir íbúa 60 ára og eldri. Eignin er alls 96,4 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin er 87,8 fm og sér geymsla í kjallara 8,6 fm, síðan er að auki sér stæði í bílageymslu svo og er lyfta í sameign. Laus við kaupsamning. Forstofa og hol með parketi á gólfum og skápum.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfum og útgengi út á verönd í suðausturátt.
Eldhús er hálfopið inn í stofu. Þar er helluborð, háfur, ofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél. Parket er á gólfi.
Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu og innréttingu.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Sérgeymsla í kjallara. Sérmerkt stæði nr. 37 í bílageymslu.
Sameign er snyrtileg. Húsið er klætt að utan sem dregur úr viðhaldsþörf. Lóðin er ræktuð og henni vel við haldið.
Falleg íbúð fyrir 60 ára og eldri í vinsælu húsi á frábærum stað með óhindruðu sjávarútsýni og í nálægð við fallega náttúru. Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is