Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna:
Glæsileg 183,9 fm eign á efstu hæð Hagamels 33, 107 Reykjavík sem skiptist í 147,2 fm hæð ásamt 36,7 fm frístandandi innréttuðum bílskúr. Hæðin skiptist í hol, þrjú rúmgóð svefnherbergi, nýuppgert baðherbergi, stórar og bjartar stofur með mikilli lofthæð og rúmgott endurnýjað eldhús. Tvennar svalir og tvær sérgeymslur í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi. Einstaklega sjarmerandi eign sem fengið hefur mjög gott viðhald, örstutt frá Melabúðinni, Sundlaug Vesturbæjar og Kaffi Vest. Bókið skoðun: Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is
Nánari lýsing:
Gengið er upp snyrtilegan stigagang inn á rúmgóðan stigapall. Af stigapalli er gengið inn í íbúðina þar sem fallegt hol tekur á móti manni. Þaðan er gengið inn í stórar samliggjandi stofur með suðurgluggum og svölum, stórt eldhús með borðkrók og gang með tveimur svefnherbergjum og baðherbergi.
Tvöföld, upprunaleg viðarhurð með sandblásnu gleri opnast úr holi inn í stofur. Stofur eru sérlega rúmgóðar og er efri stofan tveimur þrepum hærri en sú neðri. Loft eru klædd viðarklæðningu og hækkar loftið í átt að gluggum. Rýmið er einstaklega opið, bjart og skemmtilegt. Úr stofum er útsýni til sjávar. Úr efri stofu er gengið inn í rúmgott herbergi með stórum glugga til suðurs. Parket er á gólfum á holi, stofum og herbergi inn af efri stofu.
Til hægri úr holi er gengið inn á parketlagðan gang. Á gangi er eitt barnaherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Barnaherbergið er rúmgott með parketi, stórum glugga og svölum. Hjónaherbergið var áður tvö herbergi og er auðvelt að skipta því upp aftur. Tveir gluggar eru í herberginu og parket á gólfum. Gluggar beggja svefnherbergja á ganginum eru með aukinni hljóðeinangrun.
Baðherbergi er nýuppgert í anda hússins eftir hönnun Ragnars Sigurðssonar arkitekts. Er það flísalagt með baðkari m/sturtu, vegghengdu salerni, vönduðum, sérsmíðuðum innréttingum og gólfhita.
Til vinstri úr holi er gengið inn í rúmgott eldhús með endurnýjaðri innréttingu og nýlegri gaseldavél. Mjög gott skápapláss. Dúkur er á gólfi og flísar á milli borðplötu og efri skápa. Tengi er fyrir þvottavél í eldhúsinu og einnig er pláss fyrir þurrkara.
Í kjallara eru tvær sérgeymslur, 8,2 fermetrar og 4,2 fermetrar, stórt sameiginlegt þvottahús ásamt þurrkherbergi. Sameign er vel um gengin og snyrtileg. Bílskúr er 36,7 fermetrar, innréttaður sem hljóðver, en auðvelt að nýta hann til búsetu. Í skúrnum er heitt og kalt vatn, rafmagn, salerni og forstofa.
Stór garður er til suðurs með nýjum garðhúsgögnum.
Viðhaldssaga íbúðar:
2018: Allt parket pússað og mattlakkað. Loft í stofum pússað og olíuborið.
2019-2020: Viðgerð á þaki bílskúrs ásamt múrviðgerðum á bílskúr. Bílskúr og bílskúrsþak málað.
2021: Nýjar rafmagnsleiðslur dregnar í alla íbúðina og skipt um flesta tengla. Snúningsdimmerar settir á flest ljós.
2022: Rafmagnshleðslustöð sett upp fyrir framan bílskúr.
2023: Baðherbergi endurgert að fullu eftir hönnun Ragnars Sigurðssonar arkitekts með sérsmíðuðum innréttingum frá Formus og kvartsítstein á baði og við handlaug.
2023: Fataskápar sérsmíðaðir í svefnherbergi af Við og Við.
2024: Upprunalegar viðarinnihurðar uppgerðar á verkstæði og mattlakkaðar.
Viðhaldssaga húss:
2001: Skipt um skólplagnir.
2015: Dren sett við húsið.
2016: Endurnýjun á þaki hússins ásamt öðrum viðgerðum undir eftirliti Eflu.
2023-2025: Heildarendurbætur á húsinu í samræmi við ástandsskýrslu Verksýnar. Framkvæmdir voru einnig undir eftirliti Verksýnar. Skipt um flesta glugga hússins (alla glugga okkar íbúðar), húsið steypu- og múrviðgert og endursteinað. Skipt um grindverk að framan.
Flott eign í rólegu umhverfi í hjarta Vesturbæjar, nærri skólum, verslunum og annarri þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.