Fasteignaleitin
Skráð 16. ágúst 2024

Kirkjubraut 19

HæðHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
225.9 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
707.835 kr./m2
Fasteignamat
131.350.000 kr.
Brunabótamat
91.900.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2068221
Landnúmer
117575
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ofnar endurnýjaðir
Raflagnir
Raflagnir endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt / endurnýjað að hluta
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
50,91
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Parket í stofu er illa farið á tveimur stöðum. Leki varð á baðherbergi sem hefur verið lagfærður.Gólf endurnýjað, flotað og lagðar nýjar flísar. Í vondum veðrum gustar með arni. Leki kom upp í glugga í hjónaherbergi efri hæðar. Seljandi mun láta yfirfara gluggann. Kominn er tími á endurnýjun á bílskúr. Skipgt hefur verið um útidyrahurð íbúðar í kjallara eftir er að klára frágang við hana innan frá. 
Kvöð / kvaðir
Kvöð er um aðgengi annara íbúða að hitalögnum sem staðsettar eru í íbúð neðri hæðar. 
Domusnova og Ingunn Björg kynna fallega og bjarta, töluvert endurnýjaða hæð, með sérinngangi ásamt aukaíbúð og bílskúr á þessum eftirsótta stað á Seltjarnanesinu.  Húsið er staðsett innarlega í botnlanga á útsýnislóð við Valhúsahæðina á Seltjarnarnesi. Um er að ræða steinsteypt þribýlishús sem stendur á gróinni eignarlóð með einstöku óhindruðu útsýni til sjávar og góðri aðkomu fyrir framan hús. 

Skipulag eignarinnar er eftirfarandi:
  • Hæðin er með 5 herbergjum, tveimur björtum og rúmgóðum stofum með einstöku útsýni til sjávar og fjalla, rennihurð er á milli borðstofu og herbergis með fallegu útsýni og arni. Að auki eru tvö önnur svefnherbergi í eigninni. Eldhús er rúmgott með þvottaherbergi inn af, baðherbergi er á svefnherbergisgangi.
  • Lokað hefur verið á milli hæða og útbúin 2 herbergja íbúð með sérinngangi á neðri hæð og útgengi úr stofu út í garð. 
  • Bílskúr er mjög rúmgóður 36 fm2, með gluggum á tveimur hliðum, innkeyrsluhurð, ásamt gönguhurð við hlið hennar og annarri hurð með útgengi út í garð. 
Skv. HMS er eignin skráð á eftirfarandi hátt: Eignin er alls skráð 225,9 fm2, þar af er bílskúr 36 fm2.  Íbúð á efri hæð er 120,9 fm2, íbúð á neðri hæð er 69 fm2. 
 

Húsið er á mjög eftirsóttum stað í friðsælli götu við Kirkjubraut á Seltjarnarnesi. Örstutt er í verslanir og þjónustu á Eiðistorgi, í næsta nágrenni er  leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, sundlaug, íþróttasvæði Gróttu og fjölbreytt útivistarsvæði.

Einstök eign á frábærum stað á Seltjarnarnesi með mikla tekjumöguleika. 

Nánari lýsing eignar:
Efri hæð:
Forstofa:
Flísar á gólfi. 
Eldhús: Falleg ljós innrétting með granítborðplötu, niðurfellt helluborð, háfur, ofn í vinnuhæð,búrskápur, tvöfaldur ísskápur. Góður borðkrókur með fallegu útsýni. Flísar á gólfi.
Stofur:  Þrjár bjartar stórar og samliggjandi stofur þ.m.t. borðstofa, gluggar á tvo vegu, útgengt á suðvestur svalir. Stórfenglegt útsýni er úr stofu til sjávar. Falleg tekk rennihurð er á milli einnar stofunnar og arinstofu. Glæsilegur stílhreinn arinn. Hægt er að ganga inn í arinstofu frá forstofu og væri því auðvelt að útbúa svefnherbergi þar. Eikarparket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, gott skápapláss, eikarparket á gólfi. 
Herbergi: Rúmgott, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, innrétting á vegg með vaski ofan á, speglaskápur fyrir ofan. Fín sturta með glerskilrúmi, háskápur með hillum á vegg, gólfhiti. 
Þvottahús: Er inn af  eldhúsi. 

Neðri hæð: 
Forstofa:
Flísar á gólfi. 
Svefnherbergi: Bjart með dúk á gólfi.
Eldhús/ stofa: Eldhús er í skoti inn af stofu. Opin neðri innrétting með skúffum, frístandi eldavél, rúmgóð stofa er í sama rými, útgengt út á lítinn timburpall og í garð. 
Baðherbergi: Mjög rúmgott , gluggi með opnanlegu fagi. Nýlegur sturtuklefi, flísar á gólfi og veggjum.

Bílskúr
Mjög rúmgóður 36 fm2 bílskúr með innkeyrsluhurð ásamt hurð við hlið hennar, einnig er hurð úr bílskúr með útgengi út í garð. Gluggar á þremur hliðum með opnanlegum fögum. Rafdrfin hurðaopnun. 

Ath! Eignin er ekki skv. upprunalega skipulagi og teikningum. Opið var á milli hæða þar sem nú hefur verið lokað á milli og útbúin aukaíbúð á neðri hæð.
 
Athygli er vakin á því að seljandi hefur ekki búið í eigninni í töluverðan tíma og þekkir því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur í söluyfirlitinu. Væntanlegum kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga.

Myndir með húsgögnum inn á eru tölvuteiknaðar til að sýna mögulega útfærslu á rýmum.


Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykill er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/07/201344.450.000 kr.53.500.000 kr.225.9 m2236.830 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1958
36 m2
Fasteignanúmer
2068221
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.050.000 kr.

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyktarás 15
Skoða eignina Eyktarás 15
Eyktarás 15
110 Reykjavík
269.6 m2
Einbýlishús
716
649 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Bugðutangi 2
Opið hús:23. maí kl 14:00-14:30
Skoða eignina Bugðutangi 2
Bugðutangi 2
270 Mosfellsbær
319.6 m2
Einbýlishús
726
550 þ.kr./m2
175.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7b (603)
Opið hús:25. maí kl 13:00-13:30
603.png
Eirhöfði 7b (603)
110 Reykjavík
121.1 m2
Fjölbýlishús
413
1107 þ.kr./m2
134.000.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7c (606)
Opið hús:25. maí kl 13:00-13:30
606.png
Eirhöfði 7c (606)
110 Reykjavík
135.1 m2
Fjölbýlishús
413
1110 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin