Fasteignaleitin
Skráð 27. júní 2026

Smyrilshlíð 18

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
62.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.500.000 kr.
Fermetraverð
1.080.000 kr./m2
Brunabótamat
49.990.000 kr.
Byggt 2022
3. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25126504
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu bjarta og fallega 2 herbergja íbúð með suð-austur svölum á þriðju hæð í nýlegu lyftuhúsi í þessu skemmtilega hverfi rétt við Öskjuhlíðina. Héðan er stutt í Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Landspítalann, íþróttasvæði Vals á Hlíðarenda, gönguleiðir um Öskjuhlíðna, útivistarsvæði og stöndina í Nauthólsvík. Hér er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð með 1 svefnherbergi, stílhreinu eldhúsi með eyju og stofu í sama rými. Íbúðinni fylgir bílastæði í lokuðu upphituðu bílastæðahúsi.

Bókið einkaskoðun:  Unnur s:8660507 eða unnur@gardatorg.is

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með fataskáp og ljósu parketi á gólfi.
Stofa er björt með parketi á gólfi og þaðan er gengið út á skjólgóðar svalir.
Í eldhúsi er falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi, dökkri borðplötu og eyju. Þar er innbyggður ísskápur með frysti, uppþvottavél, span helluborð, vifta frá Gíra og bakaraofn.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í  hólf og gólf. Þar er hvít innrétting, stór hringspegill með baklýsingu, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Rúmgóð geymsla er í kjallara.
Birt stærð íbúðar skv. FMR er 62,5fm.

Íbúðinni fyrlgir sérmerkt bílastæði með rafhleðslustöð í sameiginlegum upphituðum bílakjallara.
Sameiginleg hjólageymsla er í bílakjallara.
Snyrtileg sameign með flísum í andyri og teppi á stigagangi. Í húsinu er lyfta.

Þetta er falleg og vel staðsett íbúð miðsvæðis í höfuðborginni í nýlegu húsi sem var byggt árið 2022.

Fasteignamat næsta árs er áætlað kr. 68.450.000.-

**Íbúðin er í útleigu fram í febrúrar 2027.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN ER STAÐSETT Á LYNGÁSI 11 Í GARÐABÆ.  

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Garðatorg eignamiðlun ehf
http://www.gardatorg.is

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Haukahlíð 2
Skoða eignina Haukahlíð 2
Haukahlíð 2
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2 - íbúð 320
Haukahlíð 2 - íbúð 320
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 12
Valshlíð 12
102 Reykjavík
78 m2
Fjölbýlishús
211
1024 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
982 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin