Fasteignaleitin
Opið hús:11. ágúst kl 18:00-18:30
Skráð 8. ágúst 2026

Lautargata 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
89.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.900.000 kr.
Fermetraverð
963.004 kr./m2
Brunabótamat
62.900.000 kr.
Byggt 2023
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25289111
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LIND Fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega 3.herbergja 89,2 m2 íbúð byggða af Þarfaþing ehf á 3.hæð með rúmgóðum svölum til suðurs  í vönduðu og fallegu fjölbýli á besta stað við Lautargötu 6 í Urriðaholtinu Garðabæ. Þvottahús inn af baðherbergi. Samkvæmt HMS er íbúðarhlutinn 84,1 ásamt 5,1 m2 geymslu. 

Lautargata 6 er 19 íbúða fjölbýli á fimm hæðum með aðalinngangi á 1. hæð .  Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.


* Sérsmíðaðar innréttingar frá Voke lll 
* Búið að setja þráðlausa ljósastýringu í alla íbúðina frá Plejd. Stillanlegar ljósa-senur, auk þráðlausri tengingu fyrir snjalltæki.

* Quarts steinn á eldhúsi og baðherbergi
* Eldhústæki frá Electrolux að undanskildu helluborði frá Elica með innbyggðum háf
* Innihurðar eru yfirfelldar og sprautulakkaðar af gerðinni Dana frá Parka ehf.
* Borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli.


Nánari lýsing eignar.
Forstofa með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Eldhúsið er opið inn í stofu með parketi á gólfi gott skápa- og borðpláss, innréttingin er frá Voke III, framhliðar eru beige, grábrúnar að lit, borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá Electrolux að undanskyldu helluborði sem er frá Elica með innbyggðum háf. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir.
Stofa-borðstofa með parketi á gólfi, opið og bjart rými, útgengt út á rúmgóðar 8,6 m2 svalir til suðurs.
Hjónaherbergið er rúmgott 11,7 m2, með parketi á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi  9,7 m2, með parketi á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi með gráum  60x60 flísar á gólfi 60x120 að stærð á veggjum að hluta, upphengt salerni, handklæðaofn og walk-in sturta, sturtutæki eru hitastýrð og innbyggð. Innréttingin er frá Voke III,  borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski.
Þvottahús er innaf baðherbergi, rennihurð á milli rýma, innrétting undir þvottavél og þurrkara framleidd af Voke III, beige grábrúnar að lit.
Geymslan er 5,1 m2 í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.

Næg bílastæði eru á lóð með rafhleðslustaurum. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 





 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 10 - íbúð 210
Hleðslustöð
Eskiás 10 - íbúð 210
210 Garðabær
64.8 m2
Fjölbýlishús
312
1079 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllakór 8
Bílastæði
Opið hús:11. ágúst kl 17:30-18:00
Skoða eignina Tröllakór 8
Tröllakór 8
203 Kópavogur
101.1 m2
Fjölbýlishús
312
761 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 6b
Efsta hæð
Skoða eignina Eskiás 6b
Eskiás 6b
210 Garðabær
82.5 m2
Fjölbýlishús
413
932 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Ástún 10
Efsta hæð
Opið hús:12. ágúst kl 17:15-17:45
Skoða eignina Ástún 10
Ástún 10
200 Kópavogur
79.3 m2
Fjölbýlishús
312
818 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin