Fasteignaleitin
Skráð 7. apríl 2026

Valshlíð 5 - 214

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
78.8 m2
3 Herb.
Verð
60.675.000 kr.
Fermetraverð
769.987 kr./m2
Fasteignamat
73.650.000 kr.
Brunabótamat
47.800.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2532609
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
14
Lóðarréttindi
Leigulóð
Verð miðast við 75% kaup

Vönduð og glæsileg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns.

Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.


* Hlutdeildarkaup 
* Þarft einungis 10% útborgun
* 6.067.500kr í útborgun mv. 10% eigið fé.


 Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Fullt verð á íbúðinni er : 80.900.000kr - 
 
Birt stærð er 78,8 fm þar af 5,8 fm geymsla í kjallara.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á suður svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1. 
 
Nánari lýsing: 
Í opnu anddyri er góður fataskápur.
Gengið er beint inn í rúmgott og opið alrými, eldhús og stofu/borðstofu,með gólfsíðum gluggum og útgengi á suðursvalir.
Eldhús með eyju. Eldhúsinnrétting með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli.
Gott hjónaherbergi með góðum fataskápum. 
Svefnherbergi með fataskáp. 
Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara
Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
 
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. 
 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjabakki 28
3D Sýn
Opið hús:19. apríl kl 13:00-13:30
Skoða eignina Eyjabakki 28
Eyjabakki 28
109 Reykjavík
69 m2
Fjölbýlishús
312
796 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 52
Skoða eignina Áshamar 52
Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
93.1 m2
Fjölbýlishús
413
751 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 23
Opið hús:19. apríl kl 12:00-12:30
Skoða eignina Barmahlíð 23
Barmahlíð 23
105 Reykjavík
106.3 m2
Fjölbýlishús
412
846 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Engihjalli 11
Opið hús:19. apríl kl 14:00-14:30
Skoða eignina Engihjalli 11
Engihjalli 11
200 Kópavogur
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
637 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin