Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Glæsilegt einbýlishús með tveimur aukaíbúðum með sér inngangi, sem hægt er að leigja út.
Eignin stendur á 480 fm eignalóð og liggur fyrir samþykki Reykjanesbæjar fyrir 94 fm byggingu á baklóð fasteignarinnar.
Nánari lýsing: Frábær og vel uppgert hús á góðum stað í miðbæ Keflavíkur sem hefur hlotið viðurkenningar í tvígang fyrir breytingar, hönnun og útlit.
Komið inn á forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Herbergi er inn af forstofu með parketi á gólfi. Gesta salerni með innréttingu, klósetti og flísum á gólfi.
Eldhús er með innréttingum, sérsmíðaðar í anda hússins, bökunarofn, gas eldavél, vifta og ísskáp. Inn af eldhúsi er mjög stór og björt stofa/borðstofa með parketi(massíf eik) á gólfi, og arni(er ekki virkur í dag), úr stofu er gengið niður hringstiga í sjónvarps og tónlistarherbergi með flísum á gólfi, stórt baðherbergi með hornbaðkari sturtu, gufubaði, innréttingu, klósetti, skolskál og flísum á gólfi. Gólfhiti er á allri neðri hæðinni. Þvottaherbergi er rúmgott með skápum og útgengi út. Rúmgott herbergi með miklu skápaplássi, flísum á gólfi og útgengi út á verönd og þaðan út í garð. Veröndin er með sérsmíðuðum heitapotti, úti eldhús með arni, góðum borðkrók og fallegum sérsmíðuðum fossi niður vegginn. Veröndin er niðurgrafin mjög glæsileg og skjólgóð. Bílskúrnum var breytt í tvær íbúðir, önnur er stúdíóíbúð og hin tveggja herbergja með eldhúsi, mjög snyrtilegt og vel gert í anda hússins, baðherbergi eru inn af báðum íbúðunum og með sturtu. Garðurinn er með sér inngangi og eru þrjár verandir í garðinum, mjög snyrtilegar og í anda hússins. Í garðinum stendur hús sem notað er sem geymsla.
Húsið er allt hið vandaðasta og fallega hannað og úr góðum efnum. Sér smíðað grindverk og hlið, eldhús, skápar, inngangur í garðinn og fl.
Frábær og vönduð eign sem bíður uppá marga möguleika, er í hjarta Keflavíkur, tvær leigueignir, hægt að stækka eignina.
Falleg eign sem vert er að skoða.
Bókaðu skoðun.
Alla nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 eða beggi@fasteignasalan.is