Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2026

SPÁNAREIGNIR - Los Altos

RaðhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
34.000.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
101220526
Landnúmer
0
Húsgerð
Raðhús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Tvennar
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÚS VIÐ RÓLEGA LOKAÐA GÖTU* *EINKASUNDLAUG OG SÓLRÍKUR GARÐUR, SVALIR OG STÓRAR ÞAKSVALIR* *3 SVEFNH OG 2 BAÐH.* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI*

Hér er frábært tækifæri til að eignast fallegt fjölskylduhús á þessum vinsæla stað í Los Altos, Orihuela Costa. Eigninni fylgir stór sólríkur garður, einkasundlaug, stórar svalir og stórar þaksvalir. Frábært útsýni!

Gengið er inn í forstofu með glerlokun og þaðan inn í aðalrými eignarinnar. Þar er rúmgott rými sem skiptist í stofu, borðstofu og eldhús. Gólfefni og eldhús hafa verið endurnýjuð. Eldhús er með góðu skápaplássi og útgengi út í garð. Frá stofu eru gólfsíðir gluggar sem opnast alveg og þaðan er einnig hægt að ganga út í garðinn. Á hæðinni er einnig svefnherbergi með skápum og nýlegt baðherbergi með sturtu. Gengið er upp á efri hæð og eru þar tvö svefnherbergi til viðbótar, bæði með fataskápum og annað þeirra með útgengi út á stórar sólríkar svalir með frábæru útsýni. Eigninni fylgja einnig stórar og sólríkar þaksvalir, þar er mikið næði, nóg af sól og frábært útsýni.
Eignin er með rafdrifnum gluggahlerum í stofu, og air con til að kæla og hita. Í stofu og svefnherbergjum eru einnig loftviftur. 

Þessi eign er ný komin í sölu og hér er hægt að gera góð kaup. Eignin afhendist fullbúin húsgögnum og því tilbúin til að flytja inn í og byrja að njóta alls sem Spánn hefur upp á að bjóða. 

Nánari upplýsingar veitir Berta Hawkins, lögg. fasteignasali, í síma 0034 615 112 869 eða berta@spanareignir.is

Los Altos er eitt eftirsóttasta íbúðasvæðið á Orihuela Costa á fallegu suðurströnd Costa Blanca. Svæðið er staðsett aðeins nokkrum mínútum frá glæsilegum sandströndum eins og Punta Prima, Playa Flamenca og La Zenia og býður upp á fullkomna blöndu af miðjarðarhafslífsstíl, þægindum og rólegu umhverfi.
Hverfið er vinsælt bæði meðal fastra íbúa og þeirra sem leita að sumarhúsi undir spænskri sól. Þar ríkir notalegt og fjölskylduvænt andrúmsloft með sól nær allt árið um kring. Á svæðinu er stutt í verslanir, veitingastaði, kaffihús, alþjóðlega þjónustu og vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Fyrir golfáhugafólk er staðsetningin einstaklega góð með nokkrum af bestu golfvöllum Costa Blanca í nágrenninu, þar á meðal Villamartín Golf, Las Ramblas og Las Colinas Golf & Country Club.
Los Altos sameinar frábæra staðsetningu, fallega strönd, alþjóðlegt samfélag og afslappaðan miðjarðarhafsstíl sem gerir svæðið að fullkomnum stað til að njóta frídaga, fjárfesta í fasteign eða búa allt árið um kring.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, útsýni, golf, húsgögn, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, Los Altos, 

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignaumboðið slf
http://www.spanareignir.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hulduhóll 23
3D Sýn
Skoða eignina Hulduhóll 23
Hulduhóll 23
820 Eyrarbakki
80 m2
Raðhús
312
638 þ.kr./m2
51.000.000 kr.
Skoða eignina Eyjavellir 5
Bílskúr
Skoða eignina Eyjavellir 5
Eyjavellir 5
230 Reykjanesbær
174 m2
Raðhús
514
523 þ.kr./m2
91.000.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 27
Bílskúr
Skoða eignina Maríugata 27
Maríugata 27
210 Garðabær
240.5 m2
Raðhús
624
873 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina B-Gata lóð 3
Skoða eignina B-Gata lóð 3
B-gata lóð 3
806 Selfoss
46.5 m2
Sumarhús
12
643 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin