LIND fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson lgfs kynnir Grenimel 10. Mjög fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús með aukaíbúð .Húsið er á þremur hæðum, kjallari, tvær hæðir og risloft. Aukaíbúð í kjallara með sér inngangi.
Nú er þessi fallega eign komin aftur í sölu þar sem áður samþykkt kauptilboð féll á fjármögnun.Einstaklega vel staðsett einbýlishús í hjarta Vesturbæjar þar sem stutt er í skóla, verslun, sundlaug, kaffihús og margt fl.
Húsið hefur verið mikið endurbætt á síðustu árum og er mjög vel skipulagt.
Miðhæð:Gengið er inn um aðalinngang í forstofu með aflokuðu fataherbergi á hægri hönd og gestasalerni. Til vinstri er fallegur upprunalegur stigi upp á eftri hæðina þar sem svefnherbergin eru. Eldhúsið er opið inn í borðstofuna sem opnast inn í stofu með franskri glerhurð. Inn af stofunni er skrifstofa með fallegri upprunalegri tekk viðarinnréttingu. Eldhúsinnréttingin frá Reform Cph úr bandsagaðri eik. Tæki frá AEG, tveir innbyggðir ískápar og tveir ofnar. Helluborðið er með innbyggðum gufugleypi. Borðplatan er úr náttúrulegum grænum marmara. Gólfefnið á báðum hæðum er fallegir 30 cm eikar plankar.
Efri hæð:Á efri hæðinni eru þrjú stór svefnherbergi, tvö stór barnaherbergi og hjónaherbergi með innangengt í fataherbergi og baðherbergi með frístandandi baðkari og sturtu. Á hæðinni er einnig annað baðherbergi með sturtu og aflokuðu þvottaherbergi fyrir innan. Geymslu/risloft er yfir hæðinni.
Kjallari:Frá forstofu liggur stigi niður í dúkalagðan kjallara sem er notaður sem u.þ.b. 40 fm geymsla en væri hægt að nýta í margt annað. Ný lagnagrind og gólfhitastjórn á veggjum. Sér inngangur liggur að þessum hluta hússins.
Kjallaraíbúð:Gengið er inn um sér inngang sem opnast inn í opið rými forstofu, eldhús og stofu. Inn af stofunni er rúmgott svefnherbergi. Baðherbergi með sturtu og upphengdu salerni. Inn af baðherbergi er lítið aflokað þvottaherbergi. Lítil geymsla fylgir kjallaraíbúðinni. Íbúðin er í útleigu.
Bílskúr:26,3 fm óuppgerður bílskúr fylgir húsinu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is -Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,