Fasteignaleitin
Skráð 18. nóv. 2025

Kílhraunsvegur 10

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-804
Verð
14.900.000 kr.
Fasteignamat
7.560.000 kr.
Mynd af Salvör Þóra Davíðsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2511694
Landnúmer
230775
Húsgerð
Jörð/Lóð
Vatnslagnir
á ekki við
Raflagnir
á ekki við
Frárennslislagnir
á ekki við
Gluggar / Gler
á ekki við
Þak
á ekki við
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
á ekki við
Upphitun
Á ekki við
Fyrirhugaðar framkvæmdir



 
Kvöð / kvaðir
Kvöð um að eigandi lóðar sé meðlimur í félagi lóðarhafa á svæðinu (sjá afsal þinlýst skjal nr. 447-X-000007/2022). Kvöð um að jarðhita- og vatnsréttindi eru undanskilin við sölu þessa (sjá afsal þinlýst skjal nr. 447-X-000007/2022). Ýmsir skilmálar í aðalskipulagi og deiliskipulagi sem kaupendur þurfa að kynna sér m.a. óheimilt er að girða af hverja lóð fyrir sig (sbr. dsk samþykkt 14.11.2006), óheimilt að byggja kjallara (sbr. br.dsk samþykkt 04.09.2007).
RE/MAX &  SALVÖR ÞÓRA Lgf. (salvor@remax.is) KYNNA:
Sjarmerandi 5992 m² eignalóð að Kílhraunsvegi 10 í Áshildarmýri, Skeiða- og Gnúpverjahreppi í um 75 km fjarlægð frá Reykjavík.
Falleg fjallasýn blasir við í allar áttir og er ca.10-20 mínútna akstur í næstu þjónustukjarna sem eru Selfoss, Flúðir og Laugarás.  
Þetta er lóð fyrir þá sem vilja byggja sér sitt draumaheimili í náttúrulegu umhverfi, njóta friðar en samt vera nálægt þjónustu og fjárfesta í landi með mikla framtíðarmöguleika. SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
  • Íbúðahúsalóð með heimild til lögheimilisskráningar og því hefðbundin fasteignalán í boði.
  • Byggingarréttur (0,05%) fyrir allt að 300 m² húsnæði (íbúðarhús + aukabyggingar) m/6m lofthæð.
  • Gisitng möguleg fyrir allt að 10 manns í fl. I&II (skv. skilm. reglug. nr.127/2016 um Veitinga-& gististaði).
  • Góður vegur, bílastæði og malarpúðar fyrir 2 hús.
  • Rotþró og lagnir fyrir vatn, rafmagn og ljósleiðara að byggingarsvæði.
  • Tengigjald fyrir heitt vatn greitt.
  • Félagsgjald Lóðafélags er 50.000.kr á ári. Kvöð um félagaaðild. 
  • Seljendur opnir fyrir uppítöku á bifreið, tengivagni og/eða kerru. 
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **

Allar nánari upplýsingar veitir:
     Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 eða á netfangið salvor@remax.is

Búið er að nostra við lóðina síðustu ár og má þar finna fallega blöndu af hraunmyndunum, lautum, gróðri og lifandi landslagi þar sem búið er að gróðursetja meðal annars birki, furu, greni, reyni, aspir ofl. Þetta er staður þar sem byggingar og náttúra njóta sín í fallegu jafnvægi með sterka tengingu við íslenskt landslag. Lóðin er svo til tilbúin fyrir framkvæmdir og hefur töluverð jarðvinna þegar verið unnin. Innkeyrsla, bílaplan og púðar fyrir 2 byggingar ásamt rotþró og lögnum fyrir vatn, rafmagn og ljósleiðara frá lóðamörkum að framkvæmasvæði. Búið er að greiða tengigjald fyrir heita vatnið. Útlagður kostnaður við efni og vinnu er að núvirði um 5,0 milljón kr.  Allir vegir í hverfinu eru tilbúnir og eru á ábyrgð lóðarfélags að viðhalda inn í framtíðina. 

Nýtingarhlutfall í núverandi skipulagi er 0,05 af lóð og því leyfilegt að byggja allt að 300 m2 af húsnæði á Kílhraunsvegi 10. Miðað við stærð lóðar má því td. byggja allt að 240 meinbýli & 60m2 sérstæðan bílskúr/skemmu eða 260m2 einbýli m/innbyggðum bílskúr og 30-40m2 gestahús. Næanari upplýsingar má fá hjá byggingarfulltrúa Skeiða- & Gnúpverjahrepps eða skoða Deiliskipulag HÉR:
https://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=dRsB77tPWE6nCYxm3yuBkw

NÁNAR UM SVÆÐIÐ:
Áshildarmýri er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Íbúðarhúsbyggðin er í nokkra mínútna akstri frá Selfossi og í næsta nágrenni við margar af helstu náttúruperlum landsins s.s. Þingvelli, Laugarvatn, Kerið, Gullfoss og Geysi.  Fjölbreytt afþreying er í boði í nágrenni svæðisins og má þar nefna golfvelli, sundlaugar, veiðisvæði, en alla þjónustu má nálgast á Selfossi sem er aðeins í 10 mínútna fjarlægð frá svæðinu. Ægifagur fjallahringur blasir við af landinu sem er allt gróið og kjörið til ræktunar. Á svæðinu er gert ráð fyrir allt að 70 eignalóðir og eru 2 aðal götur í hverfinu, Áshildarvegur og Kílhraunsvegur.

HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

HVAÐ ER ÁSHILDARMÝRI?
Áshildarmýri er sögustaður og forn samkomustaður neðarlega á Skeiðum.  Ólafur tvennumbrúni nam Skeiðin skv. Landnámu.  Kona hans var Áshildur.  Að Ólafi látnum lagði Þorgrímur örrabeinn hug á hana en sonur hennar, Helgi, var á móti ráðahagnum.  Hann sat fyrir Þorgrími fyrir neðan Áshildarmýri og drap hann. 
Áshildarmýri er í dag skipulögð byggð íbúðahúsalóða. Þar hafa verið selda lóðir og byggð sumarhús í um áratug og enn eru einhverjar eftir og áhugavert að kynna sér fyrir þá sem hafa hug á slíku. Í Áshildarmýri er hitaveita og þ.a.l. nóg af heitu vatni fyrir ábúendur. Auk þess er kalt vatn, 3ja fasa rafmagn og ljósleiðari að lóðamörkum. Í miðju svæðissins stendur skógrækt Árnesingafélagsins í Reykjavík og þar stendur fallegt minnismerki um Áshildarmýrarsamþykktina sem gerð var 1496.
Áshildarmýrarsamþykktin 1496 sneri að því að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til verndar réttindum sem Íslendingar höfðu tryggt sér með Gamla sáttmála. Þarna bundust Árnesingar jafnframt samtökum um að hrinda af sér hvers konar yfirgangi og órétti af hendi erlendra og innlendra umboðsmanna konungsvaldsins. Árnesingar komu saman að Áshildarmýri á Skeiðum, og var tilefnið yfirgangur Lénharðs fógeta og fleiri valdamanna í héraðinu. Fyrir áhugasama er HÉR linkur á útvarpserindi sem lesið var upp um samþykktina í maí 1944 og birt var í ÞJÓÐVILJANUM

UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSGREINAGERÐ ÍBÚÐARBYGGÐAR Í ÁSHILDARMÝRI MÁ KYNNA SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Allar nánari upplýsingar veitir:
     Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 eða á netfangið salvor@remax.is
 
-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Vakin er athygli á því að eignin er hluti af dánarbúi. Seljendur hafa ekki búið í eigninni og þekkja ekki ástand hennar umfram það sem kemur fram í opinberum gögnum. Seljendur hvetja því væntanlega kaupendur til að skoða eignina vel með það í huga.

-----------------------------------------------------------------
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald til Sýslumanns af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.
Ég hef starfað við fasteignasölu í yfir 12 ár.
Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta þína eign þér að kostnaðarlausu

Salvör Þóra, lgf. í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Birkimelur 10A
Skoða eignina Birkimelur 10A
Birkimelur 10A
107 Reykjavík
16.1 m2
Fjölbýlishús
2
994 þ.kr./m2
16.000.000 kr.
Skoða eignina Þórdísarbyggð 16
Þórdísarbyggð 16
311 Borgarnes
Jörð/Lóð
8.900.000 kr.
Skoða eignina Jaðar stór íbúðalóð
Jaðar stór íbúðalóð
301 Akranes
Jörð/Lóð
22.500.000 kr.
Skoða eignina Eyri Kjós Djúpagróf 2
Eyri Kjós Djúpagróf 2
276 Mosfellsbær
10,000 m2
Jörð/Lóð
2 þ.kr./m2
22.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin