Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@husfasteign.is og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Brimhólabraut 1 sem er falleg og vel skipulögð eign á tveim hæðum í Vestmannaeyjum. Eignin er byggð úr steini árið 1947 og er skráð 132,5 m2 að stærð, hún er þó stærri þar sem hluti af efri hæð er undir súð.
Frábær staðsetning nálægt miðbænum, skólum og íþróttahúsinu. Þak var yfirfarið og málað síðasta sumar. Gott 14,5 m2 útihús sem er steypt niður með sökkli, góður pallur úr viðhaldsfríu plastefni. Eignin var mikið endurnýjuð að innan fyrir nokkrum árum og er öll hin glæsilegasta, meðal annars var rafmagn, lagnir, gólefni og baðherbergi endurnýjað.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@husfasteign.is eða í síma 8611105
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi
Eldhús: Parket á gólfi, falleg hvít innrétting, flísar á milli skápa, fibo plötur á vegg.
Stofa: Parket á gólfi, útgengt á pall
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, innrétting, rúmgóð walk in sturta, upphengt wc, handklæðaofn, opnanlegur gluggi
Herbergi: Parket á gólfi, skápur, rúmgott hebergi
Efri hæð:
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Baðherbergi: Parket á gólfi, baðkar, wc
Útihús: 14,5 m2 á steyptum sökkli
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.