Fasteignaleitin
Skráð 27. mars 2024

Gilvegur 4

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
129 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
464.341 kr./m2
Fasteignamat
60.950.000 kr.
Brunabótamat
74.700.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2316252
Landnúmer
199214
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagðar í lagi.
Raflagnir
Sagðar í lagi.
Frárennslislagnir
Sagðar í lagi / rotþró.
Gluggar / Gler
Sagðir í lagi / Flestir gluggar málaðir að innan sem utan 2025.
Þak
Sagt í lagi.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suðvestur sólpallur og suðaustur verönd.
Lóð
100
Upphitun
Rafmagnshitun / gólfhiti.
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Gluggi á hjónasalerni þarfnast lagfæringar. 
 
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu glæsilegt 129 fm. 5 herbergja, heilsárs sumarhús að Gilvegi 4, 801 Selfoss, sem er við veg 354 nálægt Ölfusá (Sólheimahringurinn). Húsið er staðsett á 7500 fm eignalóð. Svefnaðstaða getur verið fyrir 10-12 manns.

Skipulag eignar: Forstofa, í alrými er borðstofa / stofa og eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi og hjónasalerni, þvottahús og geymsla.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Lýsing eignar:
Forstofa: 
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp og fatahengi. 
Borðstofa / stofa: Í alrými er rúmgóð og björt stofa, útgengi er út á suðuraustur verönd og út á suðvestur sólpall, flísar á gólfi. 
Eldhús: Í alrými með góðri innréttingu, stór eyja með skúffum og skápum, bakaraofn og örgylgjuofn, tvöfaldur ísskápur og innfelld uppþvottavél, háfur, flísalagt milli skápa, flísar á gólfi. 
Baðherbergi: Rúmgott með góðri innréttingu, sturta, upphengt salerni,  flísalagt í hólf og gólf.
Hjónaherbergi / hjónasalerni: Rúmgott hjónaherbergi, flísar á gólfi. Inna af herberginu er hjónasalerni með góðri innréttingu, upphengt salerni, útgengi út á sólpall, flísalagt í hólf og gólf. 
Svefnherbergi 2: Gott herbergi með fataskáp, flísar á gólfi
Svefnherbergi 3: Gott herbergi, flísar á gólfi.
Svefnherbergi 4 / gestaherbergi: Ófrágengið, búið er að klæða innveggi. Möguleiki að hafa salerni. 
Þvottahús / geymsla: Með skápum, hitakútur og rafmagnstafla, flísar á gólfi.
Húsið: Húsið er byggt 2008 og er úr timbri með liggjandi bárujárni. Húsið er allt byggt á vandaðan hátt. Allt tréverk var málað að utan sumarið 2025. Gluggar voru málaðir að innan 2025. Gólfhiti er í húsinu. Ársgjald í sumarhúsafélagið fyrir árið 2024 er kr. 25.000 þúsund. 
Lóðin: Lóðin er 7500 fm eignalóð.  Aðkeyrsla að bústaðnum er í gegnum gróið svæði. Ekið er inn á stórt malarlagt bílastæði framan við bústaðinn. Gengið er inn opin gang þar sem er sér samtengt hús er á hægri hönd með tveimur herbergjum. Á framhlið er mynstursteypt steypt stétt / verönd sem nær að hluta til á bakhlið hússins, hellulagt er meðfram húsinu. Á baklóð er stór suðvestur sólpallur með háum skjólveggjum. Búið er að slétta jarveg fyrir um 10 fm. garðhús sem er ósamsett en allt efni í það fylgir með og er á staðnum.

Fylgir með í kaupunum:
*
Óuppsett varmadæla fylgir með. 
* Leðursófasett, sjónvarp, borðstofuborð og stólar fylgja með. 
* Eldhúsáhöld og leirtau fylgir með. 
* Allar gardínur fylgja með. 
* Öll rúm fylgja með.
* Grill og þvottavél fylgir með. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/10/201011.336.000 kr.15.600.000 kr.129 m2120.930 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (71)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarstekkur 8
Skoða eignina Heiðarstekkur 8
Heiðarstekkur 8
800 Selfoss
92.1 m2
Fjölbýlishús
413
650 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hamravík 17
Skoða eignina Hamravík 17
Hamravík 17
800 Selfoss
100.4 m2
Raðhús
413
696 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Gagnheiði 59
Skoða eignina Gagnheiði 59
Gagnheiði 59
800 Selfoss
172.3 m2
Atvinnuhúsn.
313 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvegur 4
Bílskúr
Skoða eignina Fossvegur 4
Fossvegur 4
800 Selfoss
92.6 m2
Fjölbýlishús
312
647 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin