Fasteignaleitin
Skráð 1. sept. 2026

Tunguhella 9F

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
152.8 m2
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
359.293 kr./m2
Brunabótamat
40.200.000 kr.
Byggt 2026
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
25358694
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Höfði fasteignasala kynnir til sölu glæsilegt og einstaklega vel hannað atvinnubil við Tunguhellu 9F, 221 Hafnarfirði, á eftirsóttu atvinnusvæði í Hafnarfirði.Um er að ræða 152,8 fm iðnaðarhúsnæði sem skiptist í 108,3 fm neðri hæð og 44,5 fm efri hæð með steyptri plötu og svölum. Bilið verður afhent fullbúið á byggingarstigi 7. Einstök hönnun með gegnumakstri.

Einn helsti kostur eignarinnar er að hún er með innkeyrsluhurð í báðum endum, sem gerir kleift að keyra í gegnum bilið og auðveldar alla vörumóttöku, lagerhald og umferð stærri tækja og ökutækja. Innkeyrsluhurðirnar eru báðar 3,0 metrar á breidd, önnur 3,7 metra há og hin 3,1 metra há, báðar með rafmagnsopnun.

Vandaður frágangur: Epoxýhúðað gólf á neðri hæð - Steypt plata á efri hæð - Svalir ásamt stórum gluggum sem tryggja gott birtuflæði - Álgluggar og álinngangshurð - Gólfhiti á neðri hæð - 
Lagnir fyrir ofna á efri hæð - Burðarvirki úr stáli - Þak með stálsperrum og þakklæðning ileiningar.  - 15cm. einangraðar samlokueiningar í útveggjum - Staðsteyptar undirstöður og botnplata.

Byggingin: Tunguhella 9 er vandað stálgrindarhús sem samanstendur af níu atvinnubilum á stærðarbilinu 152,8–179,0 fm. Húsið er hannað með þarfir nútíma atvinnurekstrar í huga og hentar afar vel fyrir lagerrekstur, léttan iðnað, verkstæði, þjónustufyrirtæki og netverslanir. Á lóðinni eru 28 bílastæði og sameiginleg olíuskilja fyrir svæðið. Einnig er gert ráð fyrir möguleika á uppsetningu rafhleðslustöðva.

Virðisaukaskattskvöð hvílir á eigninni og yfirtekur kaupandi hana við kaupin. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á, sem nemur 0,3% af endanlegu brunabótamati.

Spennandi tækifæri til að eignast nútímalegt og vel hannað atvinnuhúsnæði þar sem áhersla er lögð á sveigjanleika, vandaðan frágang og hagkvæma nýtingu rýmis.

Frekari upplýsingar veita: Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA, lögg. fasteignasali, Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is og Ásmundur Skeggjason lögg. fasteignasali as@hofdi.is, Gsm 895-3000.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sólbakki 27
Skoða eignina Sólbakki 27
Sólbakki 27
310 Borgarnes
142.2 m2
Atvinnuhúsn.
323 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Dofrahella 7B
Skoða eignina Dofrahella 7B
Dofrahella 7B
221 Hafnarfjörður
233.6 m2
Atvinnuhúsn.
31
Fasteignamat 36.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Rauðhella 4
Bílskúr
Skoða eignina Rauðhella 4
Rauðhella 4
221 Hafnarfjörður
130 m2
Atvinnuhúsn.
1
399 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Hjallabraut 45A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin