Fasteignaleitin
Skráð 13. mars 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Benijofar

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
225 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
76.800.000 kr.
Fermetraverð
341.333 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
716100224
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* – *EINKASUNDLAUG*

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús á einni hæð  með lokuðum garði og einkasundlaug í Benijofar, ekta spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús. Kjallari sem hægt er að nýta sem tómstundarrými, sjónvarpsherbergi og/eða gestaaðstöðu. Þvottahús og geymsla. Verönd  út frá stofu og einkasundlaug.  Stórar þaksvalir.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
 Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 og Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Þvottahús/geymsla inn af eldhúsi. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Vel innréttað fatarými í einu svefnherberginu. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið. 
Þakverönd.
Húsinu fylgir óinnréttaður kjallari, sem hægt er að láta innrétta eftir óskum kaupanda.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Rafmagnsgardínur.
Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.

Garðurinn er hellulagður að mestu með útisturtu og einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Benijofar er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og götumarkaði, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Benijofar. Aðeins 8 km. frá fallegu ströndunum á Costa Blanca og ekki nema 2-3 mín akstur eða góður göngutúr til Ciudad Quesada og Dona Pepa, sem eru vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.


Verð miðað við gengi 1Evra=145 ISK:
frá 529.900 evrum  (ISK 76.800.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin, samtals ca. 13%.

Afhending í júní 2025.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.


Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, einkasundlaug, air con, þaksvalir, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Benijofar,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
Spánn - Costa Blanca
180 m2
Einbýlishús
533
407 þ.kr./m2
73.200.000 kr.
Skoða eignina Kléberg 14
Bílskúr
Skoða eignina Kléberg 14
Kléberg 14
815 Þorlákshöfn
187.8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
399 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Áshildarvegur 33
Bílskúr
Áshildarvegur 33
804 Selfoss
169.6 m2
Einbýlishús
413
465 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Dverghamar 38
Skoða eignina Dverghamar 38
Dverghamar 38
900 Vestmannaeyjar
208.4 m2
Fjölbýlishús
613
379 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin