Jón Smári Einarsson lgf. s. 860-6400 og Fasteignaland kynna glæsilegt nýtt 98,5 fm sumarhús við Dvergholt 15, eignarlóð í landi Galtarholts 3, 311 Borgarbyggð.
Húsið er mjög vandað, með fallegum innréttingum og steyptri gólfplötu. Midea varmadæla, loft í vatn fyrir gólfhita og neysluvatn.Lýsing eignar:Forstofa með flísum á gólfi og hljóðdempandi panel á veggjum.
Stofa og eldhús er í stóru opnu parketlögðu rými sem er m.a. með innfelldri lýsingu og hljóðdempandi panel á vegg. Aðgengi er að palli/lóð um svalahurð frá stofu.
Eldhús er opið með fallegri innréttingu efri og neðri skápum og skúffum. Spanhelluborð
, ofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur/frystir.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru húsinu, öll teppalögð og eru tvö þeirra með nýjum tvöföldum rúmum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með skúffum, handlaug og speglaskápur með lýsingu fyrir ofan vask. Upphengt salerni og sturtu "walk-in". Þar er pláss fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Að utan er húsið klætt með dökkgráu bárujárni og rauðum alubond plötum
. Þak er með þakdúk.
Góð timburverönd umlykur þrjár hliðar hússins.
Lóðin er eignarland, með kjarri og móa. Hún skilast eins og hún er sem er að mestu leiti frá náttúrunnar hendi. Bílaplan er tilbúið, en eftir á að jafna út og tyrfa hluta lóðar.
Góð aðkoma og næg bílastæði.
Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).Árgjald í félag sumarhúsaeigenda á svæðinu er um kr. 35.000.
Möguleiki er á að fá allt innbú á myndum með í kaupunum samkvæmt samkomulagi.
Sumarhúsið er á 5.000 fm eignalóð. Eignin Dvergholt 15 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 233-5150,
birt stærð 85,3 fm.
ATH. sumarhúsið er 98.5 fm af stærð og er beðið eftir að opinber skráning verið leiðrétt. Staðsetning og nærumhverfi:Stutt er á þekkta staði á Vesturlandi svo sem Arnarstapa, Kirkjufell, Snæfellsjökul, Hraunfossa, Barnafossa, Deildartunguhver, Akranes og Stykkishólm.
Stutt í golf, gönguleiðir, útivist og í alla verslun og þjónustu í Borgarnesi.
Einkar vel skipulagt og staðsett hús á vinsælum stað.Sjón er sögu ríkari. Bókið skoðun í síma 8606400.Nánari upplýsingar veitir:Jón Smári EinarssonLöggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.isSími +354 860-6400 Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.