Fasteignaleitin
Skráð 21. sept. 2026

Norðurtún 17

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
192.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
169.900.000 kr.
Fermetraverð
882.139 kr./m2
Fasteignamat
130.950.000 kr.
Brunabótamat
100.950.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1979
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2081648
Landnúmer
123461
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Vatnslagnir eru upprunalegar nema í eldhúsi.
Raflagnir
Ný aðaltafla sett upp árið 2013 og 3 fasa.
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt, vel við haldið.
Þak
Árið 2000 var þak á bílskúr lagfært og endurbætt. Þakkantur lagfærður árið 2007 og haldið vel við. Skipt um þakjárn og pappa ásmt rennum árið 2008
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu:

Norðurtún 17, 225 Garðabær. Vel við haldið 192,6 fm. einbýlishús á einni hæð með stórum og flottum bílskúr á rúmgóðri og fallegri eignarlóð á Álftanesi í 225 Garðabæ.

Íbúðarhlutinn er 141,2 m² og bílskúrinn 51,4 m², samtals 192,6 m².

Húsið stendur vel á móti sól í skjólsælu og friðsælu umhverfi á 1.104,0 m² lóð sem nýtur sín afar vel með fallegri gróðurþekju, verönd, geymsluskúrs og góðri nýtingu útisvæðis.

Húsið er bjart og hefur notalegt yfirbragð, með vel skipulögðu alrými þar sem stofur og eldhús tengjast á þægilegan hátt. Í dag eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, en eitt af þeim var áður tvö góð barnaherbergi ( auðvelt að setja upp millivegg til að aðskilja þau aftur )
Askur í innréttingu inn í eldhúsi, fataskápum og hurðum. Parket og flísar á gólfum. Virkilega vel um gengin eign sem vel hefur verið hugsað um í gegnum tíðina. 

Smelltu á hlekkinn til að skoða íbúðina í þrívídd

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánari lýsing:
Snyrtilegt anddyri með flísum á gólfi og góðum skápum. Gangurinn er bjartur og tengir saman helstu rými hússins með þægilegu skipulagi.
Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi og stórum gluggum sem hleypa miklu dagsljósi inn. Útgengt er út á pall og garð, sem styrkir tengslin milli inni- og útirýma.
Fallegt eldhús með ljósum viðarinnréttingum og stórri eyju sem nýtist vel bæði til matseldar og samveru. Dökkar flísar á gólfi setja skýran svip og gott vinnupláss er umhverfis eldhúsið.
Hjónaherbergi er bjart og rúmgott herbergi með parketi á gólfi og gluggum á tveimur hliðum og aðgengi út um svaladyr út á verönd. 
Hin svefnherbergin II eru mjög rúmgóð og auðvelt er að nýta þau á ýmsa vegu. Eitt herbergjanna var áður tvö herbergi og er því möguleiki á að breyta því til baka og fjölga svefnherbergjum í fjögur.
Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, hvítum innréttingum og með opanlegum glugga 
Gestasalerni er með snyrtilegri uppsetningu og handlaug.
Sér þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu og skápaplássi.

Bílskúrinn er mjög rúmgóður (51,4 fm. ) og vel nýtanlegur bílskúr með góðri lofthæð og flottu vinnuplássi. Steypt gólf, góð lýsing og breið innkeyrsluhurð. Hentar vel fyrir bifreið, geymslu og verkefni af ýmsu tagi.

Húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina, seljandi eignaðist húsið árið 1997 og hér má sjá það helsta sem endurnýjað hefur verið:
2000 Þakið á bílskúrnum lagað kantur hækkaðir, sett tvöfalt lag að soðnum pappa og garðdúkur og möl
2004 Girðing meðfram göngustíg sett upp
2006 Gesta salerni endurnýjað
2007 Skipt um klæðningu á þakkanti, farið yfir þakkantinn reglulega. Sett upp ný aðalhurð og hurð út á pall
2008 Sett var nýtt þakjárn, þakpappi og rennur. 
2010 Skipt um eldhúsinnréttingu, hurðir og anddyri var stækkað til að koma fyrir fataskáp. Á sama tíma var farið yfir raflagnir.
2011 Skipt um parket í stofu og allar rúður endurnýjaðar ásamt gluggalistum, frárennsli myndað.
2013 Sett epoxy á bílskúrsgólf og ný aðaltafla ásamt 3 fasa sett upp. Auk þess var sett upp innrétting inn í bílskúr
2013 Geymsluskúr í garð settur upp, smíðaður á staðnum, einangraður í hólf og golf  með vatn og rafmagni.
2019 Nýjar heimtaugar fyrir vatn og rafmagn.
2025 Skipt um undirbyggingu fyrir neðri pall og farið yfir hitagrindina
2026 Sett upp ný bílskúrshurð og grindverk á milli lóða
 
Ekki er um tæmandi listi að ræða að sögn seljanda. Seljandi hefur reglulega farið yfir ytra byrði á húsinu ásamt gluggum, þrifið rennur árlega og reynt að halda öllu í góðu horfi. 

Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-





 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1979
51.4 m2
Fasteignanúmer
2081648
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.400.000 kr.

Myndir (59)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Maríugata 12
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Maríugata 12
Maríugata 12
210 Garðabær
201.3 m2
Raðhús
423
1018 þ.kr./m2
205.000.000 kr.
Skoða eignina Miðbraut 24
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Miðbraut 24
Miðbraut 24
170 Seltjarnarnes
197.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
523
793 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngholt 2
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Lyngholt 2
Lyngholt 2
225 Garðabær
224.2 m2
Einbýlishús
524
789 þ.kr./m2
176.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósakur 18
Bílskúr
Skoða eignina Ljósakur 18
Ljósakur 18
210 Garðabær
331.8 m2
Raðhús
734
829 þ.kr./m2
275.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin