Fasteignaleitin
Opið hús:03. des. kl 17:30-18:00
Skráð 28. nóv. 2026

Bjarkarás 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
160.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
808.339 kr./m2
Fasteignamat
128.550.000 kr.
Brunabótamat
96.340.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 2006
Jarðhæð af 2
Garður
Pallur
Baðkar
Sturtuklefi
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2284525
Landnúmer
179041
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
2X pallur
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
*Fasteignasali og seljendur vekja athygli á að ólag er á helluborði og hurð bakaraofns í eldhúsi.
Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Björt og rúmgóð 4ra herbergja endaíbúð með tveim stórum pöllum og sérinngangi í Ásahverfi Garðabæjar. Eignin er alls 160,7 fm. og skiptist í forstofu, hjónasvítu með fataherbergi og innangengu baðherbergi, svefnherbergi, stóra stofu/borðstofu, stofugang/hol, eldhús með borðkrók, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu innan íbúðar. Tveir mjög rúmgóðir pallar og sérmerkt stæði er í lokaðri bílageymslu. 
Göngufæri í leik- og grunnskóla og baðströnd. Fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni í Gálgahrauninu. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 


Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í anddyri með gráum flísum á gólfi og loftháum fjórföldum fataskápum.
Eldhús: Flísalagt, bjart og rúmgott eldhús með vandaðri eldhúsinnréttingu með innbyggðum búrskáp, barstólaplássi og góðu skápaplássi. Innbyggður vínkælir, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakaraofn. Frá eldhúsi er útgengt á góðan suðurpall með skjólvegg og fallegu útsýni. Pallurinn er skráður samkv. teikningum 15,9 fm.
Borðstofa/stofa: Bjartar og rúmgóðar stofur með stórum gluggum og eikarparketi á gólfi. Frá stofum er útgengt á stóran pall með skjólvegg og hliði. Pallurinn snýr út í fallegan sameiginlegan garð og er skráður samkv. teikningum 37,6 fm.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með háum fjórföldum fataskáp og eikarparketi á gólfi. Innan hjónaherbergis hafa eigendur útbúið fataherbergi. Innan hjónaherbergis er einnig sérbaðherbergi búið sturtu, upphengdu salerni, speglaskáp og innréttingu með handlaug.
Svefnherbergi: Á upprunalegum teikningum var gert ráð fyrir tveimur svefnherbergjum til viðbótar við hjónaherbergið en núverandi eigendur tóku niður vegg á milli svefnherbergjanna og sameinuðu í eitt mjög rúmgott svefnherbergi. Auðvelt er að koma herbergjum í fyrra horf. Herbergið er með eikarparketi á gólfi og stórum belgmiklum skáp.
Svefnherbergisgangur: Rúmgóður svefnherbergisgangur með eikarparketi á gólfi tengir saman flest herbergi eignar. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með skápum, handlaug og veggfastri skápalengju. Upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu. 
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er með flísum á gólfi og hvítum efri- og neðri skápum, skolvask og vinnuaðstöðu. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Innangengt úr þvottaherbergi er sérgeymsla skráð samkv. teikningu 6,6 fm. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Garður: Stór og fallegur sameiginlegur garður. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði í kringum húsið.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði í lokari bílageymslu. Einnig er svæði fyrir bílaþvott. Búið er að setja upp tengi fyrir hleðslustöð rafmagnsbifreiða í bílastæðið.

Frábær eign á góðum stað í Ásahverfi Garðarbæjar. Stutt í góðar gönguleiðir með fram Gálgahrauni og sjávarsíðunni. Stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug Garðabæjar og alla aðra helstu þjónustu og verslanir á Garðatorgi. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/03/201341.900.000 kr.50.000.000 kr.160.7 m2311.138 kr.Nei
29/06/200735.875.000 kr.45.500.000 kr.160.7 m2283.136 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2006
Fasteignanúmer
2284525
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
1
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.890.000 kr.

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraungata 5
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:29. nóv. kl 11:00-11:30
Skoða eignina Hraungata 5
Hraungata 5
210 Garðabær
168,8 m2
Fjölbýlishús
413
1000 þ.kr./m2
168.800.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 604
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (26).png
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 604
101 Reykjavík
174,5 m2
Fjölbýlishús
322
1284 þ.kr./m2
224.000.000 kr.
Skoða eignina Huldubraut 17
Skoða eignina Huldubraut 17
Huldubraut 17
200 Kópavogur
210,1 m2
Parhús
615
752 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Skoða eignina Strikið 8
Skoða eignina Strikið 8
Strikið 8
210 Garðabær
82,6 m2
Fjölbýlishús
211
919 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin