Fasteignaleitin
Skráð 5. sept. 2024
Deila eign
Deila

Byggðavegur 89

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
222 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
123.500.000 kr.
Fermetraverð
556.306 kr./m2
Fasteignamat
78.850.000 kr.
Brunabótamat
87.900.000 kr.
Mynd af Ólafur Már Þórisson
Ólafur Már Þórisson
Löggildur fasteignasali
Byggt 1949
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2145106
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað inn í hús 2011
Raflagnir
Rafmagn yfirfarið 2019
Frárennslislagnir
Plaströr sett inn í steypt rör 2011
Gluggar / Gler
Skipt um gler og lista 2022-23 víðast hvar
Þak
Endurnýjað fyrir um 15 árum
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til suðvesturs
Upphitun
Hitaveita/ofnakerfi
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Byggðavegur 89

**Bókið einkaskoðun í síma 464 9955 eða á byggð@byggd.is**

Mjög vel við haldið og mikið endurnýjað einbýlishús á afar vinsælum stað á Brekkunni. Um er að ræða 7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með tveimur inngöngum. Húsið stendur á hornlóð en lóðin hefur fengið afar góða umhirðu, góð steypt bílastæði bæði norðan og austan við húsið, tveir skúrar á lóð og góður sólpallur sem snýr til suðvesturs. Samtals stærð er 222 fm. 


Eignin skiptist í samkvæmt núverandi skipulagi tvær forstofur, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús og geymslu, 5 svefnherbergi, tvær stofur og tvö eldhús, eitt á hvorri hæð.  

Efri hæð: 
Forstofa er rúmgóð með flísar ág gólfi og opnu fatahengi en gengt forstofu á holi er skápur. 
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi og úr borðstofu og eldhúsi er gengið út á verönd/svalir. 
Eldhús er nýlega uppgert með hvítum innréttingum frá Hyrnu. Þar er stæði fyrir tvöfaldan ísskáp með vatni, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð. Auk þess er eyja með helluborði, góðu skápaplássi og aðstöðu til að sitja við. Virkilega skemmtilegt eldhús með góðri vinnuaðstöðu og miklu skápaplássi. 
Svefnherbergi eru tvö á hæðinni, bæði með parket á gólfi. Annað þeirra er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi og er útgengt úr því út á sömu verönd/svalir og úr borðstofu.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og á veggjum í kringum votrými, baðkar og góðri innréttingu í kringum vask. Gluggi með opnanlegu fagi er í rýminu. 

Neðri hæð: 
Forstofa er með dökkar flísar á gólfi og opnu fatahengi en einnig er innangengt á mill hæða um stiga sem er með Sisal teppi á gólfi og fallegum stórum glugga. 
Hol neðri hæðar er með parket á gólfi og tengir öll herbergi saman.
Salerni neðri hæðar er með flísar á gólfi og í kringum vask. 
Þvottahús er með flísar á gólfi, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og sturtu með sturtugleri. 
Geymsla neðri hæðar hefur verið nýtt sem fataherbergi.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og tvö þeirra með lausum skápum sem geta fylgt með. 
Herbergi fyrir framan eldhús hefur verið nýtt sem stofa. Þaðan er opið inn í eldhús.
Eldhús er með kork á gólfi, góðri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél sem fylgir, bakaraofn í vinnuhæð og eldhúskrók inn í enda.  

Útisvæði er mjög skemmtilegt en stórir steyptir pallar eru bæði sunnan og vestan við húsið og snúa afar vel við sólu. Auk þess er um 19 fm. sólpallur sem gengið er út á af 2. hæð en með aðgengi um stiga niður á lóð. Sólpallur var byggður 2019. Garðurinn er gróinn með tveimur skúrum sem báðir fylgja, stærri skúrinn er einangraður með rafmagni en hinn er minni og óeinangraður en nýtist vel sem köld geymsla. Auk þessa eru steypt bílastæði fyrir 5 bíla á lóð og lagnaleið fyrir rafmagn er við bílastæði á norðvestur horni húss. 

Annað: 
-Eignin getur verið laus fljótlega

-Þak endurnýjað fyrir um 15 árum
-Húsið málað 2023
-Eldhús endurnýjað árið 2019
-Hurð úr borðstofu út á verönd endurnyjuð 2019
-Skipt um gler og lista árið 2022 - 2023 víðast hvar í húsinu
-Ofnar og lagnir að hluta endurnýjaðar 2019
-Drenað sumarið 2011 en þá voru steypt rör fóðruð með plaströrum og skipt um inntök fyrir heitt og kalt vatn
-Rafmagn yfirfarið 2019
-Lagnaleið fyrir heitan pott sunnan við hús 
-Virkilega skemmtileg og vinsæl staðsetning, stutt í grunn- og framhaldsskóla, Sundlaug Akureyrar og aðra þjónustu


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/08/200927.260.000 kr.30.500.000 kr.222 m2137.387 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Aðalstræti 38
Skoða eignina Aðalstræti 38
Aðalstræti 38
600 Akureyri
239 m2
Einbýlishús
312
529 þ.kr./m2
126.500.000 kr.
Skoða eignina Hólabraut 17 - 3 íbúðir
Hólabraut 17 - 3 íbúðir
600 Akureyri
195.1 m2
Fjölbýlishús
1037
610 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Skoða eignina Hamarstígur 22
Skoða eignina Hamarstígur 22
Hamarstígur 22
600 Akureyri
241.5 m2
Einbýlishús
624
492 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Langamýri 36
Skoða eignina Langamýri 36
Langamýri 36
600 Akureyri
245.8 m2
Einbýlishús
624
549 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin