Fasteignaleitin
Skráð 7. okt. 2026

Þelamörk 47

RaðhúsSuðurland/Hveragerði-810
129 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.500.000 kr.
Fermetraverð
678.295 kr./m2
Fasteignamat
88.100.000 kr.
Brunabótamat
77.150.000 kr.
SS
Sverrir Sigurjónsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2021
Garður
Pallur
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2515854
Landnúmer
223877
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Betri Stofan Fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Þelamörk 47, 810 Hveragerði, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 251-5854 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða 4ra herbergja miðju raðhús með mikilli lofthæð tveimur baðherbergjum og geymslulofti, möguleiki er á að bæta við fjórða svefnherberginu.
Húsið er staðsteypt á einni hæð. Veggir hússins eru klæddir að utan með lerkiklæðningu svart málaðri með Kjörvara Ibenholt og ljósgrárri Alpolic álklæðningu.
Þak er léttbyggt, einhalla timburþak með ásoðnum Protan þakdúk. Eignin stendur í fjögurra húsa raðhúsalengju, næst innsta hús við lítinn botnlanga.

Að innan telur eignin:
Forstofu með harðparketi, þaðan er gengið inn í þvottahús/geymslu og alrými. Lúga með fellistiga er upp á loft frá anddyri.
Stofa/borðstofa er í alrými með eldhúsi með mikilli lofthæð. Útgengt er úr stofuhluta á timburverönd til austurs með skjólvegg.  
Eldhús er með góðri innréttingu með innbyggðum ísskáp með frysti, innbyggðri uppþvottavél, helluborð og ofn.
Við stofu er rými sem hægt er að nýta sem sjónvarpsrými eða loka því og nýta sem svefnherbergi.
Aðalsvefnherbergi er með fataherbergi og baðherbergi inn af. Fataherbergi er innréttað með fataskápum. Baðherbergi með sturtu, vegghengdu salerni, vaskinnréttingu og speglaskáp, sturtuhorn er flísalagt. Hurð út á litinn pall að aftan úr herbergi. 
Svefnherbergi 2 er með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með harðparketi á gólfi.  
Baðherbergi er með vegghengdu salerni, góðri innréttingu með vaski og spegli fyrir ofan, walk in sturta með glerskilrúmi.  
Þvottahús/geymsla eru í sama rými. 
Gólfhiti er í allri eigninni.
Harðparket er á anddyri, alrými, svefnherbergjum, gangi og fataherbergi. Flísar eru á baðherbergjum og þvottahúsi. 
Innbyggð lýsing er í anddyri, gangi og alrými.
Timburverönd er framan og aftan við húsið, tvö bílastæði fyrir framan fylgja eigninni, möguleiki á að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíl.
 
Eignin Þelamörk 47 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-5854, birt stærð 129.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/02/202477.600.000 kr.79.500.000 kr.129 m2616.279 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skjólbraut 2
Bílskúr
Skoða eignina Skjólbraut 2
Skjólbraut 2
200 Kópavogur
119,9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
738 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 26 - Íb. 401
Bílastæði
Opið hús:29. okt. kl 17:00-17:30
Áshamar 26 - Íb. 401
221 Hafnarfjörður
108,4 m2
Fjölbýlishús
413
743 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 37
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Mýrargata 37
Mýrargata 37
101 Reykjavík
109,7 m2
Fjölbýlishús
221
1594 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 80
Opið hús:31. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Njálsgata 80
Njálsgata 80
101 Reykjavík
106,2 m2
Fjölbýlishús
323
894 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin