LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega vandað og glæsilegt 231,3 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Hólmatún 48 í Garðabæ. Eignin stendur á einstökum útsýnisstað og nýtur glæsilegs og óhindraðs sjávarútsýnis, meðal annars til Snæfellsjökuls. Húsið einkennist af góðri lofthæð, björtum og rúmgóðum rýmum, sérsmíðuðum innréttingum og frábærri staðsetningu.
Fallegt og vel útfært útisvæði er við húsið með heitum og köldum potti ásamt útisturtu og skapar frábæra aðstöðu til útiveru og afslöppunar. Húsið er steinklætt að utan og með PVC-gluggum sem gerir ytra byrði þess viðhaldslétt.
Birt stærð eignarinnar er 231,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er innbyggður bílskúr 44,1 fm.
Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, eldhús og borðstofu, rúmgóða stofu, fjögur svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, gestasalerni og þvottahús. Innangengt er í rúmgóðan bílskúr og tvö háaloft eru í húsinu sem nýtast vel til geymslu.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is.
Nánari lýsing
Forstofa með tvöföldum fataskáp og náttúrusteini á gólfi. Falleg tvöföld hurð með frönsku gleri skilur forstofu frá aðalrými eignarinnar.
Gestasalerni er innaf forstofu, með upphengdu salerni og opnanlegum glugga, flísar á gólfi.
Sjónvarpshol er rúmgott og tengir saman helstu rými eignarinnar, útgengt á baklóð. Sérsmíðuð sjónvarpsinnrétting fylgir og góður fataskápur er á holi/gangi. Náttúrusteinn á gólfi.
Eldhús og borðstofa í rúmgóðu opnu rými, náttúrusteinn á gólfi.
Eldhúsið er vel búið með sérsmíðaðri innréttingu, miklu skápa- og vinnuplássi og stórri eyju með granítborðplötu. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, bakaraofn er í vinnuhæð, gashelluborð með háfi og innbyggð uppþvottavél. Kvörn er í eldhúsvaski og gott rými fyrir stórt borðstofuborð. Náttúrusteinn og parket á gólfi.
Stofa er einstaklega björt og rúmgóð með stórum gluggum og glæsilegu óhindruðu sjávarútsýni, meðal annars til Snæfellsjökuls. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og innaf því er gott fataherbergi með innréttingum.
Svefnherbergi II, III og IV eru öll með fataskápum og parketi á gólfi.
Aðalbaðherbergi er rúmgott með bæði baðkari og sturtu, vandaðri innréttingu með tveimur handlaugum, upphengdu salerni og opnanlegum glugga. Flísar á gólfi.
Þvottahús er rúmgott með góðri innréttingu og vaski. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð og útgengt er þaðan í bílskúr. Flísar á gólfi.
Bílskúr er 44,1 fm, innbyggður og innangengt í hann úr húsinu. Þar er góð lofthæð, innrétting, gluggar og rafdrifinn hurðaopnari. Flísar á gólfi.
Geymslurými, tvö háaloft eru í húsinu og nýtast vel til geymslu.
Lóðin er fallega frágengin og útisvæðið vel útfært. Þar er heitur pottur, kaldur pottur og útisturta, sem ásamt staðsetningu hússins og sjávarútsýninu skapar einstaka umgjörð fyrir útiveru og samveru.
Hér er um að ræða einstaklega vandað og vel skipulagt fjölskylduhús á einni hæð þar sem glæsilegt sjávarútsýni, rúmgóð og björt rými, vandaður frágangur og frábært útisvæði fara einstaklega vel saman.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.