Fasteignaleitin
Skráð 25. nóv. 2026

Hofstígur 17 og 18

EinbýlishúsSuðurland/Hella-851
215.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
325.000.000 kr.
Fermetraverð
1.508.821 kr./m2
Brunabótamat
128.700.000 kr.
Byggt 2024
Pallur
Heitur pottur
Sturtuklefi
Sérinng.
Fasteignanúmer
2503822
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Miklaborg kynnir: Stórglæsilegt einbýlishús á 3 HA eignarlóð á þessum fallega útsýnisstað að Hofstíg 17 á bökkum Ytri-Rangár.

2 hjónasvítur með sér snyrtingum. Útgengi úr svítum og stofu á stóra verönd og SPA svæði með sér gufubaðshúsi og köldum og heitum pottum. Mjög mikil lofthæð er í húsinu og fjallasýn úr gólfsíðum gluggum. Sérlaga vandað til hönnunar og efnisvals í húsinu og hefur eigandi hug á að selja húsið fullbúið húsgögnum sem sérvalin hafa verið. Húsið er með gistileyfi og hentar hvort heldur sem hýbýli eða í ferðamannaþjónustu. Heimilt er að byggja allt að 600 m2 á lóðinni í sex húsum.

Um 15 m2 2ja manna gestahús með snyrtingu er á lóðinni

Lóðin Hofstígur 15 sem er 3 HA er einnig til sölu ef ef kaupandi vill aukið jarðnæði við húsið.
Allar upplýsingar veitir Friðrik í s. 616 1313. 

Nánari lýsing: Komið inn í forstofu  með mikilli lofthæð. Veggir sem ganga lang leiðina gegum húsið á báðar hendur. Sjónsteypa annars vegar og  hnota hins vegar. Hjónasvítur á hægri  hönd með gólfsíðum gluggum, miklu útsýni  og útgengi á SPA svæði. Hjónasvítur eru  með baðherbergjum með fallegum innréttingum, marmara  á borðum og walk-in sturtuklefum. Gegnheilar flísar á gólfum. Milliveggir eru tvöfaldir með einangrun og  hljóðvist er því sérlega góð í svítunum. Áfram gengið inn í stórt og bjart alrými með  gólfsíðum gluggum og miklu útsýni á þrjá vegu. 9,0 m2 glerskáli í norð-vestur. Falleg sérsmíðuð innrétting og frístandandi eyja úr marmara og íslensku blágrýti.  Kamina / eldstæði er í stofu. Allar innréttingar hússins eru sérsmíðaðar. Hljóðeinangrandi  dúkur  er í lofti alrýmis  og eldhúsi. Fullbúið veislueldhús er inn af alrými með góðri vinnuaðstöðu, kæli, frysti og vínkæli. Þar inn af er beymsla og þvotathús ásamt salerni. Gólfhiti er í öllu húsinu.

Gólfefni: Gegngeilt viðarparket er á flestum  rýmum, en gegnheilar flísar á forstofu, baðgerbergjum og eldhúsi. Sérlausnir í húsinu: Öll lýsing hússins er sérhönnuð, bæði innan og utandyra.  Sonos hjóðkerfi er í alrými og  loftskiptikerfi er í húsinu. Þá er þjófavarna-vatns-og brunakerfi er í húsinu.

Á SPA svæði er sérstætt gufubaðshús með miklu útsýni og fordyri til fataskipta. Á hellulögðu svæði eru   bæði  heitur og kaldur pottur. Sunnan við aðkomu að  húsinu er um 15 m2 gestahús með tveim rúmum og góðu baðherbergi Húsið selst  fullbúið sérvöldum húsgögnum. M.a. eru sófar og stóll frá Taccini í stofu og Jensen rúm í svítum.

Sárlega glæsileg eign í rúmlega einnar klukkustundar fjarægð frá Reykjavík sem hentar vel sem íbúðarhús eða til þjónustu við ferðamenn.

Eignarlóðin Hofstígur 17 er 3 HA og lögheimilisskráning er heimil. Þá er húsið með heils árs gistileyfi. Alls má byggja 6 hús á lóðinni, allt að 600 fm. Eigandi hefur haldið Hofstíg 15, sem næsta lóð vestan og norðan við húsið frá sölu ef svo kynni að fara að  nýr eigandi lóðar nr. 17 myndi   vilja meira jarðnæði í  kringum hús sitt. Á lóð nr. 15 er einnig heimilt að  byggja allt að  600 m2 í  6 húsum. Þarna eru  því tækifæri til frekari uppbyggingar þjónustu við ferðamenn. Verðið á lóðinni Hofstígur 15 er kr. 28.500.000

Allar nánari upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/06/202466.000.000 kr.172.993.000 kr.215.4 m2803.124 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heinaberg 23, Laust við kaupsamning
Bílskúr
Á einni hæð
Heinaberg 23, Laust við kaupsamning
815 Þorlákshöfn
224,2 m2
Einbýlishús
614
423 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Heinaberg 23, Laust við kaupsamning
Heinaberg 23, Laust við kaupsamning
815 Þorlákshöfn
224,2 m2
Einbýlishús
614
423 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarmói 8
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Tjarnarmói 8
Tjarnarmói 8
800 Selfoss
221,1 m2
Raðhús
524
488 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Ólafsgeisli 45
Heitur pottur
Opið hús:29. nóv. kl 13:30-14:00
Skoða eignina Ólafsgeisli 45
Ólafsgeisli 45
113 Reykjavík
218,4 m2
Raðhús
514
742 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin