ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu góða íbúð á jarðhæð að Skógarbraut 915, 262 Reykjanesbæ.Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða 94,4 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð að Skógarbraut 915 í Reykjanesbæ. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, rúmgóða stofu, tvö góð svefnherbergi og baðherbergi. Sér geymsla fylgir eigninni auk aðgangs að sameiginlegri þvottaaðstöðu og hjóla- og vagnageymslu.Eignin var töluvert endurnýjuð árið 2018, meðal annars var parket endurnýjað, baðherbergi tekið í gegn og ný tæki sett í eldhús. Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta, þar á meðal rofar og tenglar, auk þess sem rafmagnstöflur hafa verið endurnýjaðar. Þá hefur verið skipt um alla ofna og gler endurnýjað að hluta.
Nánari upplýsingar veitir:
Halla Vilbergsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is.*** 94,4 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð.
*** Tvö góð svefnherbergi með fataskápum.
*** Töluverðar endurbætur árið 2018.
*** Baðherbergi endurnýjað.
*** Parket endurnýjað í íbúðinni.
*** Eldhústæki endurnýjuð.
*** Rafmagn endurnýjað að hluta.
*** Rafmagnstöflur endurnýjaðar.
*** Skipt hefur verið um alla ofna.
*** Gler endurnýjað að hluta.
*** Sér geymsla í sameign.
*** Sameiginleg þvottaaðstaða.
*** Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Nánari lýsing eignar:Hol: Parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Helluborð, bakaraofn og vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Parket á gólfi og þar er lítill skápur.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi: Gott barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Flísar eru á gólfi og veggjum að hluta, hvít innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.
Geymsla: Sér geymsla fylgir íbúðinni og er hún staðsett í sameign. Málað gólf er í geymslu.
Þvottaaðstaða: Sameiginleg þvottaaðstaða er á 1. hæð hússins og er hún ætluð íbúðum hússins. Dúkur er á gólfi.
Sameign: Sameign hússins er snyrtileg, með vínilflísum og teppi á gólfum. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er jafnframt í húsinu.
Endurbætur:
Árið 2018 voru gerðar töluverðar endurbætur á eigninni. Parket var endurnýjað í íbúðinni, baðherbergi endurnýjað og ný tæki sett í eldhús. Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta og rofar og tenglar endurnýjaðir. Rafmagnstöflur hafa einnig verið endurnýjaðar. Þá hefur verið skipt um alla ofna og gler endurnýjað að hluta.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.