Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna:
Bogahlíð 9, fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 147 fm endaíbúð með gluggum á þrjá vegu í Hlíðunum. Íbúðin sjálf skiptist í forstofu og gott hol með fataskáp og tengingu við svefnherbergisálmu með 3 herbergjum, baðherbergi, gestasnyrtingu (í dag nýtt sem þvottahús), eldhús, stofu og borðstofu. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði. Í sameign á jarðhæð eru auk þess sér herbergi/útleigueining með glugga auk þess sem tvær geymslur tilheyra íbúðinni.
Framkvæmdir innan íbúðar
2019: Baðherbergi endurnýjað
2019: Ný gólfefni og listar
2019: Nýjar hurðir
2019: Nýtt rafmagn, tafla og tenglar
2019: Ný tæki, vaskur, blöndunartæki og borðplata í eldhúsi
Framkvæmdir á sameign
2026: Ný teppi og stigagangur málaður
2025: Innihurðir í sameign
2024: Bílaplan hellulagt með hita og lagt fyrir rafmagni
2024: Ruslatunnuskýli fyrir flokkunartunnur
2023: Skólp myndað
2020/21: Viðgerðir á steypu, og steinað að utan og hvít svæði máluð
2020: Þak málað, nýjar þakrennur og niðurföll
2018: Þakrými einangrað
Nánari lýsing
Komið er inn í opna forstofu/hol með skáp og vinnuaðstöðu en þaðan er hægt að ganga inn í eldhúsið en einnig er tenging við svefnherbergisálmu.
Út frá holi er gengið inn í endurnýjað baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug, gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergi eru 3 í íbúðinni, rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og tvö herbergi auk gestasnyrtingar sem í dag er nýtt sem þvottahús. Herbergin tvö eru á sér gangi ásamt gestasnyrtingu og möguleiki á að aðskilja frá íbúðarrými.
Eldhús er með fallegri eldri innréttingu sem hefur verið sprautuð hvít. Tæki, vaskur, blöndunartæki og borðplata í eldhúsi voru endurnýjuð árið 2019. Eldhúsið er rúmgott með sérsmíðuðum bekk með geymsluhólfum. Gluggi og hurð út á svalir mót vestri bjóða upp á ágætt útsýni og gott birtuflæði.
Stofurnar tvær eru rúmgóðar og samliggjandi, björt rými enda stórir gluggar mót suðri og hliðargluggi (vestur) gengið er út á skjólgóðar suðursvalir úr borðstofunni, fallegur sérsmíðaður tekk veggur með innbyggðum skáp aðskilur setustofu og borðstofu að hluta.
Íbúðin sjálf er rúmgóð og býður upp á mikla möguleika, endurnýjað harðparket á gólfi.
Sameignin er mjög snyrtileg og var nýlega máluð auk þess sem skipt var um teppi. Á jarðhæðinni eru sameiginlegt þvottahús, sameiginileg vagna/hjólageymsla og læst hjólageymsla. Gengið er út í afgirtan og barnvænan garð sem liggur að mestu meðfram suður- og vesturhlið hússins.
Íbúðinni tilheyra tvær geymslur, önnur gluggalaus (5,6 fm.) en hin rúmgóð með glugga (7,4 fm.) auk herbergis/útleigueiningu (11,6 fm) með ofni og góðum glugga með opnanlegu fagi. Í sameign er snyrting.
Húsið er virðulegt, steinað fjölbýlishús sem stendur á stórri og gróinni lóð með mjög góðri aðkomu, sér bílastæði fylgir hverri íbúð.
Staðsetning er góð, róleg umferð um Bogahlíðina, góð aðkoma og stutt í alla verslun, þjónustu og ýmsa afþreyingu.
Þetta er einstaklega björt og skemmtilega skipulögð eign sem býður upp á töluverða möguleika varðandi nýtingu.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.