Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fjórbýlishúsi við Tunguheiði 8 í Kópavogi.
--- ath. að eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús þann 11. júní milli kl. 17 og 17.30 ---
Samkvæmt skráningu HMS er eignin 80,6 fm að stærð og skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, þvottahús/geymslu og bjarta stofu og borðstofu með útgengi á rúmgóðar vestursvalir. Sameiginlegur geymsluskúr er á lóðinni og nýtist vel fyrir hjól og annan útibúnað.
Eldhús var endurnýjað árið 2023 með nýrri IKEA innréttingu, helluborði, bakaraofni, vaski og blöndunartækjum. Baðherbergi var endurnýjað árið 2024 þar sem innrétting, vaskur, blöndunartæki og gólfefni voru endurnýjuð ásamt sturtuaðstöðu.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með fatahengi. Frá forstofu tekur við hol sem tengir saman rými íbúðarinnar með góðu plássi fyrir skápa eða hirslu.
Eldhúsið er fallegt og vel nýtt með góðri vinnuaðstöðu og tengi fyrir uppþvottavél. Innaf eldhúsinu er þvottahús og geymsla með góðu skápaplássi, vinnuborði og opnanlegum glugga.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskápum og barnaherbergi í góðri stærð.
Stofa og borðstofa mynda bjart og opið alrými með stórum gluggum í tvær áttir sem tryggja góða birtu. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar vestursvalir sem liggja meðfram íbúðinni.
Baðherbergið er með snyrtilegri innréttingu, sturtu, handklæðaofni og glugga.
Húsið hefur fengið reglulegt viðhald og á síðustu árum hefur meðal annars verið skipt um gler í flestum gluggum íbúðarinnar auk viðhalds á þaki og ytra byrði hússins. Þá hefur verið lagt í undirbúning fyrir uppsetningu hleðslustöðva við bílastæði hússins.
Lóðin er sameiginleg og mjög falleg. Bílastæði eru á lóðinni og hafa skapast venjur um nýtingu þeirra milli íbúa.
Hér er um að ræða einstaklega bjarta og vel skipulagða íbúð á eftirsóttum stað í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og útivistarsvæði.
Afhending 1. september 2026
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða á netfanginu elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.