LIND fasteignasala / Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali kynnir bjarta þriggja herbergja 94,9 fm íbúð á 5. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi við Rjúpnasali 12 í Kópavogi. Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi, en m.a. eru leik- og grunnskóli í göngufjarlægð og stutt í alla helstu þjónustu. Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, samliggjandi borðstofu/stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Viðar innrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi, bakarofn í vinnuhæð, eyja.
Stofa/ borðstofa: Björt og opin með fallegu útsýni, útgengt á svalir.
Baðherbergi: Flíar á gólfi og veggjum að hluta, baðkar með sturtu, upphengt salerni, hvít innrétting.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, stór fataskápur, útgengt á svalir.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Þvottahús: Rúmgott, hvít borðplata, vaskur.
Geymsla: Í kjallara, skráð 7,9 fm ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í síma 847 8584 / tara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.