Andri Freyr Halldórsson lgfs. & Lind fasteignasala kynna til sölu:
Fallegt & bjart sumarhús við Reykjaveg 16, 806 Bláskógarbyggð.
Húsið er á vel staðsettri leigulóð sem er 2511,0 fm með fallegu umhverfi, stutt frá Brúarfossi.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 41.9 fm.
-Fasteignamat skv. fmr er 22.950.000 kr.
*Frábær staðsetning í Bláskógabyggð.
*Leigulóð sem er 2511,0 fm.
*Lokað sumarhúsasvæði með rafmagnshliði.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
Eignin skiptist í:
Forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi.
Nánari lýsing eignar:
Eldhús & borðstofa: tengjast í opið rými. Eldhúsið er með viðar innréttingu með viðarborðplötu.
Stofa: með stórum gluggum, og parketi á gólfi.
Baðherbergi: parketlagt gólf. Handlaug, salerni & sturtuklefi.
Hjónaherbergi: með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 1: með parketi á gólfi.
Lóð & pallur: gróin lóð með með timburverönd & fallegu umhverfi.
Nágrenni bústaðarins:
Eignin nýtur einstakrar staðsetningar í Bláskógabyggð, staðsett við Gullna hringinn þar sem íslensk náttúra skartar sínu fegursta. Svæðið er rólegt og fallegt með fjölbreyttu landslagi, þar sem víðáttumikil hraun, gróðursælar lautir og tær lindarvötn.
Í nágrenninu eru fjölmargar vinsælar gönguleiðir og náttúruperlur sem bjóða upp á útivist allt árið um kring.
Stutt er í Brúarfoss sem er einn fallegasti foss landsins. Einnig eru innan seilingar helstu áfangastaðir Gullna hringsins, svo sem Geysir, Gullfoss og Þingvellir, sem bjóða upp á stórbrotna náttúru og fjölbreytta afþreyingu.
Á svæðinu er mikil kyrrð og lítil ljósmengun sem gerir staðinn tilvalinn til að njóta norðurljósa yfir vetrartímann, en á sumrin má upplifa bjartar nætur og falleg sólsetur í friðsælu umhverfi.
Eignin er í þægilegri akstursfjarlægð frá Laugarvatni, þar sem alla helstu þjónustu er að finna, svo sem verslanir, veitingastaði og afþreyingu. Þá er einnig um klukkustundar akstur til Reykjavík, sem gerir staðsetninguna hentuga bæði sem frístundabústað og til útleigu.
Aðgengi að bústaðnum:
Keyrt er af þjóðvegi 1 og inn á þjóðveg 35 í átt að Bláskógabyggð. Fylgt er þjóðvegi 35 um nokkurn spöl þar til beygt er inn á Gunnarsbraut, þaðan er ekið að Reykjavegi númeri 16, þar sem bústaðurinn er staðsettur.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
*Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.