Fasteignaleitin
Skráð 12. okt. 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Torrevieja

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
129 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
46.900.000 kr.
Fermetraverð
363.566 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
201200124
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
LAGOONS VILLAGE - *VEL STAÐSETTAR ÍBÚÐIR Í TORREVIEJA*- *NÝTT HVERFI MEÐ ÖLLUM ÞÆGINDUM*

Nýjar 4ra herb. íbúðir á frábærum stað, í LAGOONS VILLAGE, nýju hverfi í Torrevieja. Glæsilegar íbúðir með vandaðri sameign.  Íbúðirnar eru sérlega vel staðsettar þar sem þjónusta, sjúkrahús, ráðstefnu- og tónleikahöll, verslanir og veitingastaðir eru í næsta nágrenni. Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð í háum gæðaflokki.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 477.

Nánari lýsing:

Rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengi út á svalir.
Rúmgott svefnherbergi með fataskáp og útgengi út á svalir og sér baðherbergi.
Tvö svefnherbergi til viðbótar og baðherbergi.
Þvottahús/geymsla innan íbúðar.

Íbúðum á efstu hæð fylgir sér þakverönd.
Íbúðum á jarðhæð fylgir sér garður.

Glæsilegur sameiginlegur garður með sundlaug, heitum pottum leikaðstöðu og frábærri sólbaðsaðstöðu. 

Eignirnar eru vel staðsettar í nýju hverfi í Torrevieja, með alla þjónustu, verslanir, matarmarkaði og veitingastaði rétt við þröskuldinn. 

Verð:
4ra herb. (3 svefnh. + 2 baðh.) Verð frá 289.000 Evrum. (43.300.000ISK) + kostn. við kaupin.


Á sama stað er líka hægt að fá minni íbúðir.
2ja herb. íbúð frá 210.000 Evrum. (31.500.000ISK miðað við gengi 1E=150ISK) + kostn. við kaupin.
3ja herb. (2 svefnh. + 1 baðh.) Verð frá 241.000 Evrum. (36.100.000ISK) + kostn. við kaupin.
3ja herb. (2 svefnh. + 2 baðh.) Verð frá 249.000 Evrum. (37.300.000ISK) + kostn. við kaupin.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Afhending í júlí 2025.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:www.spanareignir.is

Meira um LAGOONS VILLAGE hverfið:
Frábær staðsetning við náttúrulegu saltvötnin í Torrevieja. Heilsusamlegt loftslag og góð tenging við helstu samgönguleiðir, N332 strandveginn og A-7 hraðbrautina. Ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvellinum. 
Í næsta nágrenni er fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða, Habaneras verslunarmiðstöðin, stærsti götumarkaðurinn í Torrevieja (á föstudögum), ráðstefnu- og tónleikahöll og alþjóðlega einkasjúkrahúsið Quiron. Gott aðgengi að íþróttasvæðum, skólum og stutt á ströndina. Við uppbyggingu LAGOONS VILLAGE  er mikil áhersla lögð á fallegt og afslappað Miðjarðarhafsumhverfi.
Í LAGOONS VILLAGE  verða byggðir um 264.000 fm. af íbúðarhúsnæði ofanjarðar eða um 1.800 íbúðir ásamt sameiginlegum rýmum. Lögð er áhersla á sambland náttúru og bæjarstemmingu, fyrir þá sem velja þægilegan lífsstíl og heilsusamlegt líferni.
Íþróttaaðstaðan gerir ráð fyrir bæði inni- og útiaðstöðu fyrir margvíslegar íþróttir, td. fótbolta, körfubolta, tennis, paddle tennis, petanga og fl. Upphitaðar sundlaugar, heitir pottar, stutt á strönd og frábær sólbaðsaðstaða fyrir sólardýrkendur. Einnig verða í boði sameiginleg vinnurými með góðri nettengingu, spa og aðstaða fyrir snyrtistofur og sjúkraþjálfun. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, iðandi mannlíf Torrevieja með skemmtilegu "promenade" meðfram ströndinni og við bátahöfnina.
Í LAGOONS VILLAGE finnur fólk nánast allt sem er á óskalistanum þegar velja á íbúð í Spánarsólinni.

LAGOONA ROSA er fyrsti íbúðakjarninn sem rís í LAGOONS VILLAGE.  
Þar verður blanda af 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðum, sér hæðum, einbýlis- og parhúsum með glæsilegu útisvæði, heitum pottum, sundlaugum, leikaðstöðu fyrir börn og fullorðna, heilsuræktar- og íþróttaaðstöðu. Einnig verða þar fallegar göngu- og hjólaleiðir með hvíldarbekkjum, grænum svæðum þar sem bæði er hægt að njóta sólar og skugga, pálmatré, blómabeð ofl.

Við hönnun á íbúðum er lögð áhersla á stórar svalir, gott skipulag, vandaðar innréttingar og auk þess fylgir sér garður með íbúðum á jarðhæð og sér þaksvalir með íbúðum á efstu hæð. Geymsla og þvottahús innan íbúðar fylgir flestum íbúðum og möguleiki er á stæði í bílakjallara og aukageymslu gegn aukagjaldi. Sérgarður fylgir öllum sérbýlum, og auk þess möguleiki á þaksvölum.

Traustur byggingaraðili með áratuga reynslu. 
Hér er um að ræða metnaðarfullt stórverkefni í að byggja upp glæsilegt hverfi við Miðjarðarhafsströndina, þar sem tekið er tillit til kröfu viðskiptavina um nútímaþægindi, fallega náttúru og aðstöðu til heilsusamlegs lífsstíls.
Við mælum svo sannarlega með þessum íbúðum og nú er tækifæri til að tryggja sér góðar íbúðir á kynningarverðum.

Eiginleikar: ný eign, svalir, air con, sameiginleg sundlaug, strönd, miðbær, sauna, sér garður, þakverönd,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
201200124

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
92 m2
Fjölbýlishús
423
512 þ.kr./m2
47.100.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - San Fulgencio
SPÁNAREIGNIR - San Fulgencio
Spánn - Costa Blanca
127 m2
Einbýlishús
423
354 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos
SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos
Spánn - Costa Blanca
90 m2
Einbýlishús
423
506 þ.kr./m2
45.500.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - El Raso
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - El Raso
Spánn - Costa Blanca
96 m2
Fjölbýlishús
423
481 þ.kr./m2
46.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin