Fasteignaleitin
Skráð 20. okt. 2026

Asparás 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
73.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
952.316 kr./m2
Brunabótamat
41.550.000 kr.
Byggt 2000
Jarðhæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22460941
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

*** Sala íbúðarinnar féll á fyrirvara og hún því aftur komin á markað - er hún e.t.v. ætluð þér? ***

Aldir Fasteignir og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, ragnar@aldirfasteignir.is, kynna fallega og bjarta 2ja herbergja 73,4 fm. endaíbúð á 1. hæð í einkar vel staðsettu húsi innst í botnlanga á góðum stað í Garðabæ. Lóðin liggur að grænu svæði, gott útsýni er til suðurs og vesturs og fallegur sólskáli gefur eigninni aukið gildi. Húsið er viðhaldslétt, klætt utan með áli og sameign mjög snyrtileg.  Aðeins fjórar íbúðir eru í þessum stigagangi, næg bílastæði og hleðslustöðvar á plani.

Forstofa er með góðum skápum.
Stofan er rúmgóð og gengið út í glerskála sem snýr í suður út á grænt svæði. Frábært útsýni úr stofu að Bessastöðum og víðar.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, flísalagt á milli efri og neðri skápa. Gluggar á tvo vegu.
Hjónaherbergi er rúmgott, með góðum skápum.
Baðherbergi með hvítri innréttingu, flísalagt í hólf og gólf, sturta með glerskilrúmi (e. walk-in shower), tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Nýlegt parket og ljósar flísar á gólfum. Góð sér geymsla í sameign.

Mjög áhugaverð eign á góðum stað og vítt til allra átta.
Áhugasöm bókið skoðun - Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða ragnar@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg 0226
Hleðslustöð
Opið hús:20. okt. kl 12:30-13:00
laugaborg-226.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0226
Laugaborg 0226
105 Reykjavík
87 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos
Á einni hæð
SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos
Spánn - Costa Blanca
65 m2
Parhús
413
435 þ.kr./m2
28.300.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb307
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:20. okt. kl 18:00-18:30
Vetrarbraut 2-4 íb307
210 Garðabær
99,2 m2
Fjölbýlishús
312
1078 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 308
Opið hús:21. okt. kl 17:00-17:30
móa_vefur (20).jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 308
101 Reykjavík
94,5 m2
Fjölbýlishús
312
1063 þ.kr./m2
100.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin