Fasteignaleitin
Skráð 30. okt. 2024

Fljótsmörk 14

FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
193.9 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
105.000.000 kr.
Fermetraverð
541.516 kr./m2
Fasteignamat
101.000.000 kr.
Brunabótamat
107.100.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2276501
Landnúmer
199103
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Frá því að húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Nýtt í sölu - Fljótsmörk 14 Hveragerði - Einstök staðsetning þar sem stutt er í skólamannvirki, íþróttasvæði og lystigarðinn Fossflöt. Glæsilegar hjóla- og gönguleiðir undir reykjafjalli.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt og bjart 6-7 herbergja parhús (4-5 svefnherbergi og tvær stofur) á tveimur hæðum á frábærum útsýnisstað við Fljótsmörk 14 í Hveragerði. Húsið er byggt árið 2005 og er alls 193,9 fermetrar að stærð og þar af 26,6 fermetra bílskúr. Sérsmíðaðar eikar einnréttingar og gólfhiti er í öllu húsinu. 

Húsið er afar sjarmerandi og vel skipulagt. Húsið skiptist í forstofu, stóra stofu sem rúmar setustofu og borðstofu, 4-5 svefnherbergi, gestasnyrtingu, baðherbergi, eldhús, rúmgott þvottaherbergi, sjónvarpsstofu/fjölskyldurými og bílskúr. Möguleiki að útbúa útleigueiningu í bílskúr.

Virkilega fallegur og skjólgóður garður sem snýr að mestu til suðurs og vesturs. Afgirt lóð með annars vegar timbur verönd og hins vegar með hellulagðri verönd. Hellulögð stétt fyrir framan hús. Heitur pottur og sjarmerandi gróðurhús á baklóð með vínvið og kirsuberjatré. Staðsetning hússins er afar góð beint á móti grunnskólanum og íþróttahúsinu í Hveragerði. Fallegt útsýni að Reykjafjalli og glæsilegar gönguleiðir við óspillta náttúruna eins og Varmá, Reykjadal og fleiri falleg útivistarsvæði í og við Hveragerði. Öll verslun og þjónusta í göngufjarlægð. Auk þess er sundlaugin í Hveragerði og Lystgarðurinn Fossaflöt nánast í bakgarðinum.

Afhending gæti orðið fljótt.


Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum skápum.
Þvottaherbergi/geymsla: Er rúmgott og er staðsett inn af forstofu. Flísar á gólfi og góðar innréttingar/skápar. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt glugga til norðurs.
Stofa: Er rúmgóð með gegnheilu parketi á gólfi. Gluggar til suðurs og vesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á viðarverönd til suðurs og einnig útgengi á hellulagða verönd til vesturs.
Eldhús: Með gegnheilu parketi á gólfi og fallegri eikar eldhúsinnréttingu. Eldhús er opið að hluta við stofu. Flísar á milli skápa og lýsing undir efri skápum. Tveir stál bakaraofnar, stál háfur, tengi fyrir uppþvottavél og keramik helluborð. Gluggi til norðurs með fallegu útsýni að Reykjafjalli.
Svefnherbergi I: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi II: Staðsett inn af bílskúr. Harðparket á gólfi og gluggar til suðurs.

Efri hæð: Fallegur timburstigi á milli hæða. 
Sjónvarpshol/fjölskyldurými: Er rúmgott, með mikilli lofthæð og gegnheilu parketi á gólfi. Þakgluggar til austurs og vesturs. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru stórar og snúa til austurs (falleg morgunsól).
Svefnherbergi III (hjónaherbergi): Með gegnheilu parketi á gólfi. Skápar. Gluggar til vesturs og norðurs. Innbyggð lýsing í loftum. Fallegt útsýni til norðurs að Reykjafjalli.
Svefnherbergi IV: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum/skúffum og gluggum til suðurs og vesturs. Innbyggð lýsing í loftum.
Svefnherbergi V: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum/skúffum og gluggum til suðurs og austurs. Innbyggð lýsing í loftum.
Baðherbergi: Er rúmgott og með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta. Innrétting við vask og skápar. Upphengt salerni, handklæðaofn og innbyggð lýsing í loftum. Gluggar til norðurs og austurs.

Bílskúr: Er 26,6 fermetrar að stærð. Innangengt er inn í bílskúr í gegnum þvottaherbergi. Málað gólf. Gluggar til suðurs. Í dag er auka svefnherbergið (merkt svefnherbergi II) staðsett inn af bílskúr. Möguleiki að útbúa útleigueiningu í bílskúr.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á fjölskylduvænum stað við Fljótsmörk 14 í Hveragerði líkt og greinir nánar hér að ofan. Glæsilegt fjölskylduhús sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/08/202591.400.000 kr.10.500.000 kr.193.9 m254.151 kr.Nei
28/11/201838.100.000 kr.57.000.000 kr.193.9 m2293.965 kr.
16/03/200819.290.000 kr.37.900.000 kr.193.9 m2195.461 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Giljatunga 10
Skoða eignina Giljatunga 10
Giljatunga 10
805 Selfoss
133.5 m2
Sumarhús
423
883 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26
Skoða eignina Strandgata 26
Strandgata 26
220 Hafnarfjörður
73.9 m2
Fjölbýlishús
2
1162 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 - 704
Bílastæði
Laugavegur 168 - 704
105 Reykjavík
86.3 m2
Fjölbýlishús
322
1331 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 22 - Íb. 405
Bílastæði
Opið hús:16. apríl kl 17:00-17:30
Áshamar 22 - Íb. 405
221 Hafnarfjörður
110.5 m2
Fjölbýlishús
423
768 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin