Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu MÖÐRUFELL 5, 111 Reykjavík.
Þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi í rólegu og grónu hverfi Smellið hér fyrir staðsetningu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, TILBOÐSGERÐ OG ÖNNUR SKJÖL.
Möðrufell 5 er steinsteypt fjölbýlishús byggt árið 1974, eignin skiptist í íbúð á hæð 73.3 m² og geymslu 4.9 m² samtals 78.2 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: anddyri, hol, tvö herbergi, stofa/borðstofa, eldhús, geymsla og baðherbergi.
Í sameign: hjóla- og vagnageymsla, þvottahús og sér geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri og hol tengja saman önnur rými, flísar á gólfi og panell á veggjum að hluta.
Stofa og borðstofa í einu rými. Útgengt er út á steyptar svalir til vesturs.
Eldhús, hvít innrétting með efri skápum og grárri borðplötu, keramikhelluborð og vifta, ofn, stálvaskur uppþvottavél er í innréttingu og fylgir.
Herbergi I, hjónaherbergi, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi II með parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, standandi salerni, baðkar með sturtufestingu, handklæðaofn og vifta.
Gólfefni: flísar á anddyri, holi, eldhúsi og baðherbergi, parket á stofu, borðstofu og herbergjum.
Í sameign:
Þvottahús er sameiginlegt með stigagangi í Möðrufelli 5 og 7, steypt gólf, snúrur.
Sér geymsla, steypt gólf og hillur á veggjum.
Möðrufell 5 er steinsteypt, kjallaralaust, fjögurra hæða fjölbýlishús með hallandi járnvörðu risþaki úr timbri yfir steyptri loftplötu. Möðrufell 5 er eitt hús í húsasamstæðunni Möðrufelli 1-15 og er hvert húsnúmer eitt stigahús með tíu samþykktum íbúðum.
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun. Rólegt og gróið hverfi á miðlægum stað á höfuðborgarsvæðinu.
Lóð, 9202 m² leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 1. október 1972, skjal nr. 411-Æ-30263.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu:
Þriggja herbergja íbúð á 2. hæð tv., anddyri, eldhús, bað, tvö herbergi, stofa, 73.3 m², svalir. Sérgeymsla á 1. hæð merkt 01-03 á meðfylgjandi teikningu, 4.9 m². Hlutfallsleg hlutdeild í sameign.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 27/06/2018 | 25.500.000 kr. | 28.000.000 kr. | 78.2 m2 | 358.056 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 91,5 | 77,5 | ||
221 | 113,7 | 81,9 | ||
101 | 51 | 53,5 | ||
600 | 99,5 | 63,9 | ||
460 | 228,6 | 60,9 | ||
105 | 85,1 | 69,9 |