Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Þykkvabæ. Vel skipulagt og bjart fimm herbergja einbýlishús með bílskúr á þessum eftirsótta stað í Árbænum. Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Úr forstofunni er innangengt í þvottahús. Eldhúsið er mjög rúmgott. Þar er falleg, endurnýjuð innrétting með miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu. Stofan er mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum. Útgengt er úr stofunni út í garð. Úr stofunni er einnig gengið út í Sólskálann. Baðherbergið sem hefur allt verið endurnýjað er með walk in sturtu, fallegri innréttingu og upphengdu salerni. Á svefnherbergisganginum er sjónvarpshol. Svefnhverbergin eru fjögur þau eru öll með skápum. Úr hjónaherberginu er útgengt út í garðinn um nýlega rennihurð. Garðurinn í kringum húsið er stór og skjólgóður. Gólfefni eru korkur, parket og flísar. Bílskúrinn hefur að hluta til verið innréttaður sem íbúð. Þar er snyrtileg eldhúsinnrétting, alrými sem er stúkað af í stofu og svefnherbergi og nýlega uppgert baðherbergi með upphengdu salerni og sturtu. Útgengt er úr bílskúrnum út í garðinn. Hiti er í planinu fyrir framan húsið. Húsið stendur á frábærum, skjólsælum stað. Samkvæmt eiganda hefur húsið verið töluvert endurnýjað. Árið 2016 var bílskúrinn gerður að íbúð, gluggar þar voru lagaðir og skipt um gler, nýtt rafmagn var lagt í skúrinn. Lagnir fyrir heitt og kalt vatn voru endurnýjaðar ásamt því að endurnýja skólplögn. Árið 2017 var húsið múrað að utan með hvítum múr, gluggar , þakkantur og skorsteinn málað. Árið 2018 var baðherbergið endurnýjað, heitt og kalt vatn endurnýjað sem og ofnalögn frá inntaksgrind í bílskúr. Allar lagnir á baðherberbergi endurnýjaðar og hiti lagður í gólf þar. Einnig var skipt um fjóra glugga þetta ár. Árið 2019 var eldhúsinnrétting endurnýjuð. Árið 2021 voru lagnir fóðraðar frá brunni út í götu. Árið 2022 voru gólfefni endurnýjuð og dregið nýtt rafmagn í húsið. Þetta er virkilega fallegt fjjölskylduhús, sem bíður uppá mikla möguleika á eftirsóttum stað, þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, leikskóla, heilsugæslu, verslun, íþróttastarf sem og útivistarparadísina í Elliðaárdalnum , sem vert er að skoða.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.