Fasteignaleitin
Skráð 28. okt. 2026

SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
85.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
48.300.000 kr.
Fermetraverð
562.937 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
106281026
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *DRAUMA-EIGNIR GOLFARANS* *GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Í LITLU FJÖLBÝLI VIÐ SERENA GOLFVÖLLINN OG MAR MENOR HAFIÐ* *3 SVEFNH. OG 2 BAÐH.* *JARÐHÆÐ MEÐ SÉR GARÐI* *EFRI HÆÐ MEÐ STÓRUM ÞAKSVÖLUM* *SÉR STÆÐI Í BÍLAKJALLARA AUK GEYMSLU* *GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, STRÖND OG SKEMMTILEGAN SPÆNSKAN BÆ*

Vandaðar og fallegar 4ra herb. íbúðir í litlu fjölbýlishúsi, í fyrstu línu við La Serena golfvöllinn í Los Alcazares. Göngufæri á fallega strönd og gamla bæinn í Los Alcazares, þar sem svo sannarlega er sál og sjarmi, bátahöfn og skemmtilegt "promenaðe" meðfram ströndinni. Einnig eru fleiri golfvellir í nágrenninu, t.d. Roda Golf, Mar Menor golfvöllurinn, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og fleiri. Um 60 mín akstur til Alicante, og ca. 10 mín. akstur til Cartagena sem er skemmtileg spænsk borg. Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri.

Nánari upplýsingar:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is , sími 0034 615 112 869 
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is , sími 00354 893 2495


NÁNARI LÝSING:
Rúmgóðar, bjartar og vel hannaðar íbúðir í litlu tveggja hæða fjölbýli. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Annað baðherbergið er beint inn af hjónasvítu og þar er einnig fataherbergi. Eldhús, stofa og borðstofa í opnu og vel tengdu rými. Gott þvottahús er inn af eldhúsi. Sér þaksvalir með íbúðum á efri hæð og sér garður með íbúðum á jarðhæð. Öllum íbúðum fylgir stæði í bílakjallara og geymsla. Heimilistæki í eldhúsi fylgja einnig með í kaupunum.

Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með frábærri sólbaðsaðstöðu og grænum svæðum sem deilist á 2 lítil fjölbýli með efri/neðri hæðum og 14 einbýlishús.

VERÐ, miðað við gengi 1EVRA=138ISK.
Neðri hæð - 3 svefnh. og 2 baðh. frá 325.000 evrum (ISK 44.900.000)
Efri hæð - 3 svefnh. og 2 baðh. frá 350.000 evrum (ISK 48.300.000)

Íbúðum á jarðhæð fylgir góð sér verönd/garður.
Íbúðum á efri hæð fylgir stór sér þakverönd

Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábærum stað.

Los Alcázares  er mjög vinsæll sumarleyfisbær og þar er góð aðstaða til stunda sjóíþróttir. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying og ýmsar skemmtilegar uppákomur allt árið um kring. Gott aðgengi að allri nauðsynlegri þjónustu, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og tapasbörum.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður,  útsýni, air con, bílakjallari, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Mar Menor, Los Alcazares,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
106281026
Fasteignanúmer
106281026

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Reykjastræti 7 (214)
móa_vefur (18).png
Reykjastræti 7 (214)
101 Reykjavík
101 m2
Fjölbýlishús
211
1266 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 3
Bílastæði
Skoða eignina Kuggavogur 3
Kuggavogur 3
104 Reykjavík
109,2 m2
Fjölbýlishús
32
777 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjarmói 6 208
Bílastæði
Opið hús:31. okt. kl 13:00-15:00
Lækjarmói 6 208
603 Akureyri
77,2 m2
Fjölbýlishús
312
905 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16
Skoða eignina Suðurhella 16
Suðurhella 16
221 Hafnarfjörður
78,4 m2
Fjölbýlishús
211
764 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin