Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2025

Háimelur 1A

Nýbygging • RaðhúsVesturland/Akranes-301
158.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
535.309 kr./m2
Fasteignamat
74.250.000 kr.
Brunabótamat
85.400.000 kr.
Mynd af Sigþór Bragason
Sigþór Bragason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Garður
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2369601
Landnúmer
226213
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason Löggiltur fasteignasali sími 899 9787 kynna: Nýtt og  glæsilegt  endaraðhús við Háimel 1A í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Húsið 158,6 fm á einni hæð þar af er bílskúr 32,2 fm. Vel skipulögð eign með þremur svefnherbergjum og stórum björtum stofum.

Smellið hér til að sjá myndband af eigninni

NÁNARI LÝSING:
Rúmgott flísalagt anddyri með stórum hvítum fataskáp.
Innaf anddyri er gestasalerni en þar eru flísar á gólfi, vegghengt salerni og hvít skúffu-innrétting með dökkri borðplötu, undir vaski. Stór hringlaga spegill fyrir ofan vask.
Stofan er mjög björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum á tvo vegu og  hurð út í  suðurgarð og rennihurð á vestur gafli. Einstök fjallasýn til Akarfjalla og yfir Hvalfjörðinn
Eldhúsi er samliggjandi stofunni og er þar stór hvít innrétting með dökkri borðplötu. 
Við svefnherbegjagang eru þrjú svefnherbergi.
Herbegi 1 gott 9,4f m barnaherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Herbergi 2 rúmgott 11,1fm barnaherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi
Herbergi 3 stórt1 5,3 fm Hjónaherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi
Baðherbergið er með flísum á gólfi og í kringum sturtu, hvít skúffu-innrétting undir vaski og skápur á vegg, vegghengt salerni, "walk-in" sturta. Hurð út í bakgarð frá baðherbergi.
Þvottahúsið, gottskipulag með þvottahúsið við herbergjaganginn,  þaðan er innangengt í bílskúrinn  Hvítar innréttingar í þvottahúsi innfelldur skolvaskur, skúffur undir innréttingum þannig að vélar verða í vinnuhæð. 

Gólfefni; Flísar og parket er frá Álfaborg. Vandað harðparket er á gólfum svefnherbergja og í stofu en flísar á gólfum í þvottahúsi, forstofu, baðherbergi og gestasalerni. Epoxy á bílskúrsgólfi. Bílskúrinn er 32,2 fm og því mjör rúmgóður og er epoxy á gólfi. Bílskúrshurð og við hlið hennar er gönguhurð í bílskúrinn. Gólfhiti er i húsinu. Bílastæði; Búið er að skipta um jarðveg og þjappa, í bílplani fyrir framan hús. 
Þakið er lituð aluzinkbára og þakkantur með sléttu áli í sama lit. Innfelld lýsing og rafmagnstenglar eru undir þakkanti, sem úr hvímáluðu timbri.
Garður/lóðin snýr í vestur og suður og er henni skilað grófjafnaðri. Lagnaleið fyrir heitan pott er fyrir sunnan hús.

Þetta er einstaklega vel skipulagt einnarhæðar hús á frábærum stað í Melahverfi, sem er ört vaxandi byggðarkjarni í Hvalfjarðarsveit, 15 mín. akstur frá Akranesi og 40 mín. frá Reykjavíkur. Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit er eitt stöndugasta sveitarfélag landsins. Boðið er m.a. uppá gjaldfrían leikskóla, sem er í hverfinu, í 5 klst. á dag, frá klukkan 9-14, fyrir börn frá eins árs aldri og þar er 25% afsláttur af fæðiskostnaði. Skólabíll ekur börnum í Heiðarskóla, sem er grunnskóli.  Nánar um skólastarf í Hvalfjarðarsveit. 
Húsið  ​​afhendist fullbúið, bygging B4 og lóðin grófjöfnuð og búið að skipta um jarðveg og þjappa fyrir framan

Nánari upplýsingar veitir: Sigþór Bragason  Löggiltur fasteigna- og skipasali sími 899 9787 eða sb@gimli.is og Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, 

Opinber gjöld: Seljandi greiðir byggingaleyfis- og gatnagerðagjöld, auk tengigjalda fráveitu, inntaksgjöld fyrir heita og kalt vatn og rafmagn. Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.



Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2023
32.2 m2
Fasteignanúmer
2369601
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.050.000 kr.

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Núpahraun 26
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Núpahraun 26
Núpahraun 26
815 Þorlákshöfn
148.4 m2
Raðhús
413
606 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
Opið hús:03. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
150.1 m2
Fjölbýlishús
412
932 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Birkimói 7
Á einni hæð
Opið hús:04. okt. kl 12:00-13:00
Skoða eignina Birkimói 7
Birkimói 7
815 Þorlákshöfn
171.4 m2
Raðhús
523
671 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Birkimói 5
Á einni hæð
Opið hús:04. okt. kl 12:00-13:00
Skoða eignina Birkimói 5
Birkimói 5
815 Þorlákshöfn
171.4 m2
Raðhús
523
671 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin