VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu íbúð á tveimur hæðum við Dunhaga 18 í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er í mikið endurnýjuðu fjölbýlishúsi með lyftu og er staðsett í næsta nágrenni við Háskóla Íslands. Íbúðin er fjögurra herbergja á tveimur hæðum og er skráð sem íbúð 105. Hún er björt og rúmgóð, með góðu skipulagi og vönduðum innréttingum. Heildareignin er skráð samtals 140,1 fm.
Húsið við Dunhaga 18–20 var upphaflega byggt árið 1959 en miklar endurbætur og stækkun voru gerðar á öllu húsinu árið 2022, meðal annars með byggingu fjórðu hæðar ofan á húsið og viðbygging aftan við húsið þar sem eru 3 íbúðir þ.á.m. íbúð 105. Byggingarár hússins verður áfram opinberlega skráð sem árið 1959 í Fasteignaskrá.
Staðsetning eignarinnar er á grónum og eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir Borga Harðardóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 821 2412, tölvupóstur borga@valborgfs.is
Eignin er skráð sem hér segir hjá HMS:
Efri hæð, birt stærð 68,9 fm.
Neðri hæð, birt stærð 71,2 fm.
Efri hæð:
Komið inn í anddyri með skáp. Stofa og eldhús mynda bjart og rúmgott opið alrými. Frá stofu er útgengt á svalir með tröppum niður á hellulagðan sérafnotaflöt sem snýr í vestur.
Eldhúsið er búið vönduðum innréttingum og góðum eldhústækjum, þar á meðal spanhelluborði og ofni, auk innbyggðs ísskáps og uppþvottavélar.
Tvö svefnherbergi eru á efri hæð. Hjónaherbergi er rúmgott og með fataskápum.
Vandað baðherbergi með vönduðum innréttingum og hreinlætistækjum. Gólf og veggir flísalögð. Upphengt salerni
Neðri hæð:
Frá efri hæð er gengið niður í alrými/hol.
Eitt svefnherbergi er á neðri hæð.
Sérgeymsla með glugga, sem hægt er að nota sem herbergi/skrifstofu.
Vandað baðherbergi með vönduðum innréttingum og hreinlætistækjum. Gólf og veggir flísalögð. Upphengt salerni
Sérþvottahús er innan íbúðar á neðri hæð.
Harðparket er á öllum gólfum nema votrými eru flísalögð.
Húsið og staðsetning
Dunhagi 18–20 er endurnýjað fjölbýlishús með lyftu. Staðsetning eignarinnar er sérstaklega góð í grónu og eftirsóttu hverfi, skammt frá Háskóla Íslands og með stutt í alla helstu þjónustu og samgöngur.
Hér er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð á tveimur hæðum, með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, ásamt geymslu sem hægt er að nýta sem herbergi/vinnuaðstöðu, vestursvölum og góðum innréttingum.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.