Fasteignamiðstöðin er með til sölu eignina Eyvindará I Fljótsdalshéraði nú Múlaþingi, 701 Egilsstaðir. Fasteignanúmer F217-5372, landeignanúmer L157589.
Um er að ræða jörðina Eyvindará 1, Fljótsdalshéraði. Enginn húsakostur. Í Fljótsdælu er Eyvindará sögð ,,eitthvert bjargmest land í héraðinu og þokkaland allmikið". Þar er sagður haugur Helga Droplaugarsonar. Hann er vís og friðlýstur og Helgi þar tryggilega geymdur, því að eitilhörð klöpp er í hólnum undir rekustungudjúpu jarðvegslagi. Sömuleiðis er friðlýst rústabunga, þar sem bærinn er talinn hafa staðið fyrr. Eyvindará er bændaeign frá fornu fari, mun þó hafa verið Skriðuklausturseign um tíma fyrr á öldum. Uppsalir hjáleiga þaðan. Talið er, að Miðhús og Dalhús og ef til vill Þuríðarstaðir hafi byggst úr Eyvindarárlandi fyrr á öldum. Landshættir og endingar bæjarnafna (-hús) benda til, að það sé rétt. Núverandi landamörk eru Eyvindaráin, sem bærinn dregur nafn af, að suðvestan niður undir flugvöll, að utan Finnsstaðamörk um það bil mitt á milli bæja, að ofan á kafla við Uppsalaá, og auk þess á Eyvindará spildu fremur mjóa milli Uppsala að utan og Miðhúsa, Steinholts og Miðhúsaár (frá Gufufossi við Lönguhlíð) að innan upp á Fjarðarheiðarbrún. Neðan heiðar skiptast móahæðir og ásar á við mýrar. Á Eyvindarárnesi við ána eru harðvellisbakkar, gott slægjuland. Fjallið er hjöllótt, vel gróið og gott beitiland. Vegurinn upp á Fjarðarheiði liggur að mestu í landi Eyvindarár. Eyvindará er vel til búskapar fallin, ræktað land samkvæmt HMS 21.5 hektarar og góð ræktunarskilyrði hagfelld og jörðin vel í sveit sett. Heildar landstærð um 580 hektarar. Hlunnindi eru af malarnámi. Góðir virkjunarmöguleikar.
Tilvísunarnúmer: 10-1802.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.