Fasteignaleitin
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 21. ágúst 2026

Skipholt 50A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
175.6 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
739.749 kr./m2
Fasteignamat
119.100.000 kr.
Brunabótamat
81.700.000 kr.
SK
Sigríður Kjartansdóttir
Byggt 1985
3. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2012488
Landnúmer
103465
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunaleg
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir einstaklega fallega, bjarta og rúmgóða íbúð á tveimur hæðum í litlu fjölbýli á frábærum stað við Skipholt í Reykjavík. Aukin lofthæð er í hluta íbúðar og einnig er hún að hluta undir súð þannig að gólfflötur er stærri en upp er gefið. Sér þvottaherbergi er innan eignar og út frá stofum eru stórar skjólgóðar svalir sem eru með fallegu útsýni. Samkvæmt HMS er íbúðin 175,6 fermetrar og samanstendur af 4. svefnherbergjum, holi, stofu, borðstofu, eldhúsi, búri, 2. baðherbergjum og þvottahúsi.

Næg bílastæði eru við húsið sem hefur hlotð gott viðhald. Nýlega er búið að sílabera húsið, mála glugga og viðarverk sem við á. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á liðnum árum og þar meðal var eldhús endurnýjað, þakgluggi í fremsta herbergi aðalhæðar endurnýjaður og stækkaður. Einnig er nýbúið að endurnýja flest öll gler í gluggum íbúðar á aðalhæð sem við á.


Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Lýsing eignar:
Inngangur, sameiginlegur með 3 öðrum íbúðum og er snyrtilegur með teppi á stigahúsi.
Forstofa, parketlögð með fataskáp.
Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf, flísalagður sturtuklefi, innrétting og handklæðaofn.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi l, parketlagt með fataskáp.
Barnaherbergi ll, parketlagt með fataskáp.
Stofa / borðstofa, parketlögð, björt og rúmgóð með aukinni lofthæð og útgengi á rúmgóðar svalir 
Eldhús, flísalagt gólf með fallegum hvítum innréttingum, tengi fyrir uppþvottavél, eyja með spanhelluborði, góðum hirslum og áfastri borðaðstöðu. Gott búr með hillum er inn af eldhúsi.
Gengið upp um hringstiga í rishæð eignar frá gangi.
Rishæð,
Barnaherbergi lll, parketlagt, er skráð sem hjónaherbergi.
Hjónaherbergi, flotað gólf, rúmgott með fataskáp og skúffusamstæðu á heilum vegg. Var áður hol og auðvelt að breyta aftur.
Þvottaherbergi / geymsla, málað gólf, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð, hillur og vaskur.
Baðherbergi, inn af hjónaherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting og baðkar með sturtu. 

Á jarðhæð:
Sameiginlegrar hjóla- og vagnageymsla.

Húsið, er byggt 1985 er í góðu ástandi og hefur alltaf hlotið gott viðhald. Sameignin er einnig öll mjög snyrtileg og vel umgengin.

Lóðin, sem er skráð viðskipta og þjónustulóð er 2934,0 fermetrar og er sameiginleg með tveimur húsum merki nr. 50A. Góð aðkoma er að húsinu með hellulögðum upphituðum stéttum og sameiginlegum bílastæðum. Stór trjábeð eru við húsið.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og eftirsóttum stað. Stutt er í leikskóla, skóla, menntaskóla, verslun og aðra þjónustu ásamt miðbæ Reykjavíkur

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða í netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/10/202072.600.000 kr.74.000.000 kr.175.6 m2421.412 kr.
11/03/2016101.050.000 kr.57.900.000 kr.175.6 m2329.726 kr.
27/03/201446.850.000 kr.38.897.000 kr.234.8 m2165.660 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
84 m2
Fjölbýlishús
312
1285 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 30
20251103-_OA_6586.jpg
Skoða eignina Drápuhlíð 30
Drápuhlíð 30
105 Reykjavík
107.9 m2
Fjölbýlishús
412
899 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Völvufell 30
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:45
Völvufell 30.jpg
Skoða eignina Völvufell 30
Völvufell 30
111 Reykjavík
166.8 m2
Raðhús
714
545 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Bólstaðarhlíð 44
Bólstaðarhlíð 44
105 Reykjavík
53.8 m2
Fjölbýlishús
211
965 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin