SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Í LA FLORIDA* *4 SVEFNHERBERGI OG 2 BAÐHERBERGI* *UPPHITUÐ EINKASUNDLAUG* *BÍLSKÚR* *SÓLRÍK VERÖND* *RÚMGÓÐUR GARÐUR MEÐ ÁVAXTATRJÁM*
Heillandi og rúmgott einbýlishús á góðum stað í La Florida þar sem þægindi og næði eru í fyrirrúmi. Frábær útiaðstaða; hinn fullkominn staður til að njóta lífsins við Miðjarðarhafið. Eignin er vel staðsett á Orihuela Costa í nálægð við verslanir, veitingastaði og aðra nauðsynlega þjónustu. Alicante-flugvöllur er í um 45 mínútna akstursfjarlægð.
Nánari upplýsingar:
Jake Hawkins, sölufulltrúi, jake@spanareignir.is, Sími: +34 711 004 573
Nánari lýsing:
Eignin er á tveimur hæðum og samanstendur af 4 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Á aðalhæðinni eru tvö svefnherbergi og á neðri hæðinni eru tvö svefnherbergi til viðbótar ásamt baðherbergi. Skipulagið hentar einstaklega vel fyrir stórar fjölskyldur, þegar á að taka á móti gestum eða sem orlofseign.
Utandyra er upphituð einkasundlaug svo hægt er að taka sundsprett allt árið um kring. Við húsið er einnig fallegur og rúmgóður garður með ávaxtatrjám sem skapar notalegt og friðsælt umhverfi til afslöppunar og samveru.
Falleg og sólrík verönd býður upp á frábæra aðstöðu til að njóta máltíða undir berum himni, hvers konar samveru með fjölskyldu og vinum eða einfaldlega slaka á í spænsku sólinni.
Eignin hefur einnig tvo aðskilda innganga, einkabílskúr og geymsluskáp utandyra, sem eykur bæði þægindi og notagildi.
HELSTU EIGINLEIKAR
*4 svefnherbergi*
*2 baðherbergi*
*Einbýlishús*
*2 svefnherbergi á aðalhæð*
*2 svefnherbergi og baðherbergi á neðri hæð*
*Einkasundlaug með upphitun*
*Einkabílskúr*
*Sólrík verönd með aðstöðu til samveru*
*Tveir aðskildir inngangar*
*Rúmgóður einkagarður með ávaxtatrjám*
*Geymsluskápur utandyra*
Hvort sem þú ert að leita að rúmgóðu fjölskylduheimili til heilsársbúsetu eða orlofseign býður þessi eign upp á frábært tækifæri til að njóta þægilegs lífs í sólríku umhverfi Spánar.
Nánari upplýsingar:
Jake Hawkins, sölufulltrúi, jake@spanareignir.is, Sími: +34 711 004 573
Alicante-flugvöllur er í um 45 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Torrevieja er í um 15 mínútna akstursfjarlægð og þar má finna fjölbreyttar verslanir, veitingastaði, smábátahöfn og margt fleira.
Fjölmargir golfvellir eru í nágrenninu, þar á meðal Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas og La Finca, auk fleiri glæsilegra golfvalla. Dýragarðurinn í Elche er einnig í þægilegri akstursfjarlægð.
VERÐ: 329.900 evrur eða 45.500.000 ISK (m.v. við gengi 1evra=138)
Möguleiki er á að fjármagna hluta kaupverðsins með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum starfað við fasteignasölu á Spáni frá árinu 2001 og byggt upp víðtæka þekkingu, reynslu og traust.
Nánari upplýsingar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaup:
Gera þarf ráð fyrir 9% virðisaukaskatti (spænskum söluskatti) af kaupverði eignarinnar. Að auki má áætla um 3% vegna stimpilgjalda og annars kaupferliskostnaðar. Heildarkostnaður vegna kaupanna getur því numið um 12%.
EIGINLEIKAR EIGNAR
Einkagarður, loftkæling, upphituð einkasundlaug, sérinngangur, húsgögn, ávaxtatré, þakverönd, bílskúr, strönd
SVÆÐI: Costa Blanca, La Florida,