Fasteignaleitin
Skráð 4. sept. 2026

Prestsbær

Jörð/LóðNorðurland/Sauðárkrókur-551
1,468,106.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
1.045.000 kr.
Brunabótamat
77.740.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Pallur
Heitur pottur
Fasteignanúmer
2321369
Landnúmer
217667
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
00
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir PRESTSBÆ á Hegranesi í SKAGAFIRÐI – einstaklega fallega og vel staðsetta 146,8 hektara jörð með glæsilegu útsýni til allra átta.
Prestsbær stendur á afar friðsælum og skjólsælum stað í fögru umhverfi Hegraness, miðsvæðis í Skagafirði og í stuttri akstursfjarlægð frá Sauðárkróki.
Af jörðinni er víðáttumikið útsýni yfir fjöll, vötn og gróið undirlendi héraðsins. Húsið stendur nokkuð frá þjóðveginum, falið í landslaginu og sést ekki frá vegi. Malbikað er heim að afleggjara jarðarinnar.
Á jörðinni stendur bjart og fallegt 93,6 m² íbúðarhús, byggt árið 2009, auk 13 m² geymslu frá árinu 2015.
Húsið er vel staðsett í landinu og stórir gluggar hleypa birtunni inn og ramma inn hið stórbrotna umhverfi.
Húsið skiptist í rúmgott og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og forstofu/geymslu.
Innréttingar eru bjartar og stílhreinar og flísar eru á gólfum. Úr alrýminu er gengið út á rúmgóða verönd með heitum potti.
Húsið hefur einkum verið nýtt sem orlofshús, notkun þess verið hófleg og er það því afar vel með farið.  Rennihurðir í öllum herbergjum og baðherbergi.

Jörðin á sér merka sögu í íslenskri hrossarækt og er Prestsbær upprunajörð margra þekktra verðlaunahesta.
Landið hentar einstaklega vel til hrossaræktar og annarrar landbúnaðartengdrar starfsemi. Það er allt afgirt og tún jarðarinnar hafa verið nýtt til heyskapar.
Húsið er tengt hitaveitu og ljósleiðari er til staðar. Kalt vatn er fengið úr einkaborholu á jörðinni, en borholan þjónar jafnframt bænum Ási.
Prestsbær býður upp á eftirsóknarverða samsetningu: víðfeðmt land, mikið næði, fallega náttúru og góða nálægð við alla helstu þjónustu á Sauðárkróki.
Eignin hentar vel sem hrossaræktarbú, til fastrar búsetu eða sem griðastaður til eigin nota eða útleigu, með fjölbreytta möguleika til útivistar og náttúruupplifunar.

Einstaklega áhugaverð jörð á fögrum og friðsælum stað í hjarta Skagafjarðar.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Elka, licensed real estate agent at TORG Real Estate, tel. +354 863 8813, presents PRESTSBÆR in Hegranes, SKAGAFJÖRÐUR – an exceptionally beautiful and well-located 146.8-hectare property offering magnificent panoramic views in every direction.
Prestsbær is situated in an exceptionally peaceful and sheltered setting amid the beautiful landscape of Hegranes, centrally located in Skagafjörður and only a short drive from Sauðárkrókur.
The property offers expansive views across the region’s mountains, lakes and lush countryside. The house is set well back from the main road, nestled discreetly into the landscape and not visible from the road. The road is paved as far as the property’s access road.
The property includes a bright and attractive 93.6 m² residential house, built in 2009, as well as a 13 m² storage building constructed in 2015.
The house is beautifully positioned within the landscape, with large windows allowing abundant natural light and framing the spectacular surroundings.
The house comprises a spacious and bright open-plan living area with a lounge, dining area and kitchen, three bedrooms, a bathroom, a laundry room, and an entrance hall/storage area.
The interior is bright and contemporary, with tiled floors throughout. The open-plan living area opens onto a spacious terrace with a hot tub.
The house has primarily been used as a holiday home and has seen relatively light use. It has therefore been exceptionally well maintained. All bedrooms and the bathroom feature sliding doors.
The property holds a distinguished place in Icelandic horse-breeding history, and Prestsbær is the birthplace of several renowned prize-winning Icelandic horses.
The land is particularly well suited to horse breeding and other agricultural activities. The entire property is fenced, and its fields have been used for haymaking.
The house is connected to geothermal heating, and fibre-optic internet is available. Cold water is supplied from a private borehole on the property, which also serves the neighbouring farm of Ás.
Prestsbær offers a highly sought-after combination of extensive land, exceptional privacy, beautiful natural surroundings and convenient access to all essential services in Sauðárkrókur.
The property is ideally suited as an equestrian or horse-breeding estate, a permanent residence, or a private retreat for personal use or rental purposes, with excellent opportunities for outdoor recreation and enjoying Icelandic nature.
A truly exceptional property in a beautiful and peaceful setting in the heart of Skagafjörður.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2015
13 m2
Fasteignanúmer
2321369
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
1.860.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.860.000 kr.
Brunabótamat
6.140.000 kr.
Byggt 2009
93.6 m2
Fasteignanúmer
2321369
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
28.650.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
28.650.000 kr.
Brunabótamat
71.600.000 kr.

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Merkigarður
Heitur pottur
Skoða eignina Merkigarður
Merkigarður
561 Varmahlíð
159,244.3 m2
Jörð/Lóð
41
Fasteignamat 500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Bjarkarás 18
Skoða eignina Bjarkarás 18
Bjarkarás 18
805 Selfoss
5,313 m2
Jörð/Lóð
1 þ.kr./m2
6.000.000 kr.
Skoða eignina Öngulsstaðir 6
Skoða eignina Öngulsstaðir 6
Öngulsstaðir 6
605 Akureyri
916.2 m2
Jörð/Lóð
1028
123 þ.kr./m2
112.300.000 kr.
Skoða eignina Kílhraunsvegur 18 stutt f. Selfossi
Kílhraunsvegur 18 stutt f. Selfossi
804 Selfoss
Jörð/Lóð
14.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin