Valborg fasteignasla kynnir í sölu iðnaðarhúsnæði við Mánamörk 3-5, 810 Hveragerði.
Iðnaðarbilið er 112,7m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Húsnæðið skiptis í iðnaðarhúsnæði/verkstæði annars vegar og skrifstofu hins vegar. Innangengt er á milli hluta, sameiginlegur inngangur er til suðurs, innkeyrsludyr eru til norðurs.
Húsnæðið er byggt árið 2008, stálgrindarhús með yleiningum, og stendur á iðnaðar- og athafnarlóð í Hveragerði, við þjóðveg 1.
Eignin er tvö samliggjandi iðanaðarbil á tveimur fastanúmerum. mhl. 01.0101 fastanúmer 229-7581 skráð 59.2 m² að stærð og
mhl. 01.0114 fastanúmer. 232.1134 skráð 53.5 m². Skipulag eignar: Verkstæðisrými með salernisaðstöðu, íbúðarrými með alrými og baðherbergi. Geymslurými er á milli verkstæðis og íbúðar.
Árið 2015 var eignin töluvert endurnýjuð að innan.
Nánari lýsing:Bil 1 snýr til norðurs. Þar eru inngöngudyr og innkeyrsludyr.
Málað gólf og góð lofthæð. Þriggja fasa rafmagn og heitt & kalt vatn. Innangengt er á milli þessara tveggja bila.
Bil 14 er með rúmgott geymslurými með steinteppi á gólfi.
Þar er baðherbergi með sturtu, handlaug og wc en einnig er pláss fyrir þvottavél. Flísar á gólfi.
Malbikuð lóð í sameign er við eignina. Við hvert bil eru tvö bílastæði
Lóðin er sameiginleg 3070.3 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.
Sérafnotafletir á lóð eru fyrir framan innkeyrsludyr séreigna.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.