Fasteignaleitin
Skráð 15. apríl 2026

SPÁNAREIGNIR - Catral

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
107 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
37.700.000 kr.
Fermetraverð
352.336 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Byggt 2026
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
103150426
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝJAR ÍBÚÐIR MEÐ SUNDLAUG Á ÞAKI* *LYFTUHÚSNÆÐI MEÐ 9 ÍBÚÐUM, NÝ KOMIÐ Í SÖLU OG ÞVÍ HÆGT AÐ VELJA BESTU STAÐSETNINGUNA* *1,2 OG 3 SVEFNH. OG 1-2 BAÐH* *ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRU VERÐI Í EKTA SPÆNSKUM BÆ STUTT FRÁ ALICANTE* 

Fallegar og vel skipulagðar íbúðir í nýju lyftuhúsnæði, sumar með stæði í bílageymslu og geymslu, en allar með svölum og aðgangi að sameiginlegu svæði á þaki með sundlaug og sólbaðsaðstöðu. Um 20 mín akstur frá Alicante og niður á ströndina í Guardamar eða La Marina. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Örstutt labb á lokal veitingastaði í bænum, en stutt í stærri bæi eins og Almoradí, Guardamar, Rojales og Torrevieja. Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. Íbúðirnar eru vel skipulagðar, með 1,2 eða 3 svefnherbergjum og 1-2 baðherbergjum. 

Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. Sími 00354 893 2495


Eignirnar afhendast með vönduðum Bosch eldhústækjum, þvottavél og hita í gólfi á baðherbergjum. Svalir eru út frá stofu, og sameiginleg Sólbaðsaðstaða á þaki með sundlaug.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Sumum eignum fylgir stæði í bílageymslu og geymsla.

Catral er fallegur spænskur bær, algjör útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.
Örstutt göngufæri í miðbæinn þar sem hægt er koma við hjá bakaranum og fá sér nýbakað brauð, eða kjötkaupmanninum og velja sér góða steik á grillið.

FRÁBÆRT VERÐ, frá: 113.000 evrum (ISK 16.400.000 miðað við gengi 1E=145ISK)

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður. 
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: stæði í bílageymslu, sameiginleg sundlaug, geymsla,
Svæði: Costa Blanca, Catral,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
103150426

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallakur 4b
Efsta hæð
Skoða eignina Hallakur 4b
Hallakur 4b
210 Garðabær
117.2 m2
Fjölbýlishús
312
767 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Þórðarsveigur 4
Bílastæði
Þórðarsveigur 4
113 Reykjavík
103.1 m2
Fjölbýlishús
413
775 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Lómasalir 6
Bílastæði
Skoða eignina Lómasalir 6
Lómasalir 6
201 Kópavogur
122.1 m2
Fjölbýlishús
413
777 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Faxabraut 25
Skoða eignina Faxabraut 25
Faxabraut 25
230 Reykjanesbær
114.7 m2
Fjölbýlishús
312
466 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin