Fasteignaleitin
Skráð 3. nóv. 2026

Hamravík 7

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
97 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
710.309 kr./m2
Brunabótamat
55.100.000 kr.
Byggt 2024
Sérinng.
Fasteignanúmer
25343234
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Heimaland kynnir, Hamravík 7 á Selfossi 
Vel skipulagt og fallegt raðhús í Jórvíkurhverfinu á Selfossi.


Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu báruáli og Stac Bond ál klæðningu í bland, bárujárn er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 97m2 og skiptist hún í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi og alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og  eldhúsi. 
Lóðin er þökulögð og mulningur er í innkeyrslu.
Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum, inn af forstofu er alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu en úr stofu er útgengt inn á baklóð íbúðarinnar sem snýr á móti suðri og suðvestri. Alrýmið er með harðparket á gólfum og eldhúsinnrétting er rúmgóð með helluborði, ofni, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni öll rúmgóð með harðparketi á gólfum og tvo svefnherbergi eru með fataskápum.
Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum við sturtu og baðinnréttingu, upphengt salerni og línskápur.
Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð, gólf er flísalagt.

Hér er um að ræða vel skipulagða snyrtilega eign sem vert er að skoða nánar.

Allar nánari upplýsingar veitir
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njörvasund 21
Bílskúr
Opið hús:22. nóv. kl 15:00-15:30
Skoða eignina Njörvasund 21
Njörvasund 21
104 Reykjavík
100 m2
Fjölbýlishús
312
799 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Garðsendi 12
Skoða eignina Garðsendi 12
Garðsendi 12
108 Reykjavík
97,5 m2
Fjölbýlishús
313
717 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Grænaborg 6
Efsta hæð
Opið hús:29. nóv. kl 14:00-15:00
Skoða eignina Grænaborg 6
Grænaborg 6
190 Vogar
81 m2
Fjölbýlishús
312
764 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Kóngsbakki 5
Skoða eignina Kóngsbakki 5
Kóngsbakki 5
109 Reykjavík
87,4 m2
Fjölbýlishús
312
685 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin