LIND fasteignasala kynnir bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð ásamt bílskúr í fallegu þríbýli við Njörvasund 21 í Reykjavík. Tvö rúmgóð svefnherbergi, stórt og bjart alrými, suðursvalir. Bílskúrinn er sérstæður með glugga á tvo vegu og sér inngangshurð. Sér bílastæði er fyrir framan bílskúr. Eignin er skráð 100 fm hjá Þjóðskrá Íslands, þar af er íbúð og geymsla 74,4 fm og bílskúr 25,6 fm. Eigninni fylgir stór sérafnotareitur á lóð, alls 226,7 fm skv. eignaskiptayfirlýsingu. Heimild er til að gera tröppur frá svölum og útbúa pall innan sérafnotareits. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á liðnum árum, m.a. parket, eldhús og eldhústæki, rafmagn ofl. Þakjárn var endurnýjað fyrir ca. 20 árum. Eignin er vel staðsett í miðju grónu hverfi í hjarta Reykjavíkur þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Forstofa: Fyrir framan íbúð, flísar á gólfi.
Hol: Parket á gólfi.
Eldhús: Parket á gólfi, nýleg, hvít innrétting með viðarborðplötu og góðu skápaplási. Fallegur, franskur gluggi setur svip sinn á rýmið. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Tveir ofnar, annar þeirra combiofn. Eldhúsinnrétting og eldhústæki voru endurnýjuð 2025.
Stofa: Parket á gólfi, útgengi á suðursvalir. Heimilt er að gera tröppur frá svölum niður á sérafnotareit í garði.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting með handlaug og speglaskáp, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, opnanlegur gluggi.
Sérgeymsla (3,5 fm) undir útitröppum. Timburpallur í gólfi, gluggi. Möguleiki er á að útbúa þvottahús í rýminu.
Bílskúr: Steypt gólf, heitt og kalt vatn, tengi fyrir þvottavél er í bílskúr. Sérinngangshurð frá garði, gluggar á tvo vegu. Möguleiki er á aukaíbúð í bílskúr.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Framkvæmdir árið 2025 að sögn seljenda: Nýtt eldhús og ný eldhústæki.
Nýtt parket lagt á alrými og herbergi.
Rafmagn íbúðar endurnýjað að mestu og rafmagnstafla yfirfarin fyrir íbúð.
Dimmerar settir í flest rými.
Loft og veggir íbúðar málaðir.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.