Stuðlaberg fasteignasala kynnir í sölu stílhreint fimm herbergja 175,3fm einbýlishús á einni hæð þar af 32fm bílskúr við Heiðargarð 10 í Reykjanesbæ. Eignin er mikið endurnýjuð að innan sem utan eftir hönnun JeES arkitekta ehf. Staðsetning er eftirsótt þar sem stutt er í grunnskólann Heiðarskóla, leikskólann Garðasel, bakarí, nettóverslun og fallegar gönguleiðir.
Um er að ræða vel hannað og mikið endurnýjað fjölskylduhús ásamt bílskúr á einni hæð í Heiðarhverfi í Reykjanesbæ þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og fallegar gönguleiðir.Forstofa: komið er inn í forstofu með mattlökkuðu Pandomo floti á gólfi og þreföldum fataskáp.
Gestasalerni: innaf alrými er gestasalerni með vatnsheldu micro sement floti á gólfi og skáp undir vaski.Öll baðtæki eru innbyggð. Opnanlegur gluggi er á salerni.
Stofa: alrými eignarinnar er mjög rúmgott og bjart með gólfsíðum gluggum útí garð og rúmar borðstofu, stofu og setkrók. Loft er að hluta niðurtekin með hljóðísogsplötum og skápar innbyggðir með gott geymslupláss. Niðurlímt matt olíuborið eikarparket er á gólfi og Pandomo flot undir borðstofu við svalahurð með aðgengi útá sólpall aftan húss til suðuvesturs.
Eldhús: eldhús er með svartri eikarinnréttingu. svartmattri Fenix borðplötu með spanhelluborði, innfeldum stálvask og vegghengdri viftu. Í báða enda eru opnar vegghillur og háir skápar með siemens bakaraofni og sambyggðu ofni og örbylgjuofni. Borðkrókur er í eldhúsinu, úr gegnheillri 10cm eikarplötu og tveir gluggar sem hleypa góðri birtu inn. Mattlakkað Pandomo flot er á gólfi.
Þvottahús: Þvottahús er við aðalrými og er notað sem fjölskylduinngangur, fataherbergi og þvotthús. Gólf er með flísum.
Geymsla: Bílskúr er með vegghillum fyrir geymslur.
Svefnherbergisálma: Herbergisgangurinn er klæddur bæsuðum birkikrossvið með undirlýsingu og innfeldri hurð á kúlulegu inní eitt herbergið. Herbergin eru fjögur, öll með niðurlímt matt olíuborið eikarparket, Oak concrete á gólfi.
Aðalbaðherbergi: í svefnherbergis-álmu er aðalbaðherbergi. Veggir eru flísalagðir og gólf flotað með vatnsheldu micro sementi. Rýmið er með rúmgóðri sturtu, innbyggðum baðtækjum, tvöföldum silestone vaski með svart mattri eikarinnréttingu undir vask og spegilskáp yfir vask með ágætis skápaplássi. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Garðrými: Við alrými er stór og grænn sólpallur með heitapott frá Normx. Frá sólpalli er gengið að aflokuðu garðrými aftan húsið. Sólpallur tengist hellulögðum stíg að bílskúr.
Bílskúr: bílskúrinn er skráður 32,0fm með göngudyr, glugga á tveimur hliðum og mikið hillupláss.
Breytingar sem hafa verið gerðar á ytra birði: þakkantur og þakrennur á húsi og skúr, þakjárn skúrs og flasningar, bílskúrshurð, allir gluggar og aðalhurðir, staðsteyptir garðveggir að framan, hellulögð innkeyrsla og aðalinngangur, sólarpallur með heitapotti, háar girðingar á lóðarmörkum (lokaður garður), beð/gróður og allar frárennslilagnir frá húsi og brunnar.
Breytingar sem hafa verið gerðar á innra birði: breytt herbergis skipan, gólfhiti í alrými, báðum salernum og eldhúsi, ofnar í herbergjum, gluggakistur, öll gólfefni í húsinu, hljóðísogs loftaklæðningar, öll lýsing hússins, neysluvatns- og raflagnir, allar innihurðIr, innbyggðar innréttingar, aðalbaðherbergi, nýtt gestasalerni, eldhúsinnréttingar og fyrirkomulag eldhúss, anddyri og þvottahús. Allar helstu innréttingar eru sérsmíðaðar og aðalrými lýsingarhannað. Öll vinna hefur verið unninn á árunum 2012-2021.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Haraldur F. Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
s. 6619391
halli@studlaberg.is