Fasteignaleitin
Skráð 26. júní 2026

Urriðaholtsstræti 11 (103)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
125.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
953.100 kr./m2
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
253478848
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

--- Glæsileg 3ja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, tveimur baðherbergjum, fataherbergi og þvottaherbergi ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.nordurhlid.is - Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Urriðaholtsstræti 11 í Urriðaholti, 210 Garðabæ fyrir 50 ára og eldri. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4ra herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í jarðhæð. 

Glæsileg sameign (miðrými) eru í húsunum með útsýni að Heiðmörk. Miðrýmið skilast fullbúið með tveimur golfhermum, billiard aðstöðu, æfingasal og hlýlegri setustofu sem er hentug fyrir afslöppun, fundi eða óformlega samveru. Einnig verður eldhúsinnrétting, borð og stólar fyrir veislur, spilakvöld eða öðru líkt þar sem notalegt andrúmsloft ræður ríkjum. Auk þess er þvottaaðstaða fyrir bifreiðar í bílakjallara fyrir íbúa.

Íbúð 103: Er glæsileg 125,8 fermetra þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með rúmgóðri verönd til suðurs, tveimur baðherbergjum, fataherbergi og þvottaherbergi. Rúmgóð geymsla fylgir íbúðinni sem er 10,4 fermetrar að stærð auk bílastæðis í bílakjallara. Afhending er í ágúst 2025 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi (þar af er hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi), 2 baðherbergi, fataherbergi og þvottaherbergi. Útgengi á verönd til suðurs frá stofu.

ATH: Ljósmyndir innan úr íbúð eru úr sýningaríbúð og endurspegla ekki skipulag þessarar íbúðar.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.nordurhlid.is

Húsin eru vel staðsett steinsnar við Heiðmörk. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bræðraborgarstígur 13
Opið hús:07. júlí kl 17:00-17:30
Bræðraborgarstígur 13
101 Reykjavík
84.7 m2
Fjölbýlishús
312
942 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Hesthamrar 5
Bílskúr
Skoða eignina Hesthamrar 5
Hesthamrar 5
112 Reykjavík
198 m2
Hæð
513
606 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarlundur 6
Bílskúr
Skoða eignina Skógarlundur 6
Skógarlundur 6
210 Garðabær
215.7 m2
Einbýlishús
614
857 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 63 - 2 bílastæði
Laugavegur 63 - 2 bílastæði
101 Reykjavík
127.4 m2
Fjölbýlishús
312
706 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin