Fasteignaleitin
Opið hús:07. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 30. júní 2026

Bræðraborgarstígur 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
84.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.800.000 kr.
Fermetraverð
942.149 kr./m2
Fasteignamat
72.900.000 kr.
Brunabótamat
38.500.000 kr.
Mynd af Elínborg María Ólafsdóttir
Elínborg María Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
861 6866valborgfs.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2001507
Landnúmer
100479
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Nýlegir að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
5,3
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugaðar eru endurbætur á útihurð stigagangs.
Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu, fallega og bjarta þriggja herbergja íbúð að Bræðraborgarstíg 13, 107 Reykjavík, íbúð merkt 02 0201 á annarri hæð, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Húsið er fjögurra hæða steinsteypt og steinað fjölbýlishús (kjallari, þrjár hæðir og ris) á horni Bræðraborgarstígs 13 og Bárugötu 37. Eignin skiptist í anddyri/hol, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjóla- og vagnageymslu .
Birt stærð eignarinnar er  84,70 m², íbúð er skráð  81,6m² ásamt geymslu 3,1 m². 


Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Rúmgott hol sem myndar hjarta íbúðarinnar, en héðan er gengið inn í öll rými íbúðarinnar. Viðarparket er á gólfi, fatahengi og veggfóður á einum vegg.
Stofa/borðstofa: Björt og opin stofa með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Rósetta í lofti fyrir ljósakrónu.
Eldhús:  Rúmgott og hlýlegt eldhús með eldri, hvítlakkaðri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi, vegghillum og glugga út í bakgarð. Gamaldags eldavél, keypt ný 2021. Upprunalegur rauður linóleumdúkur á gólfi og borðplata úr formæka, hvoru tveggja upprunalegt. Eldhúsið hefur mikinn sjarma og býður upp á möguleika á mildri endurnýjun þar sem halda mætti í upprunalegt yfirbragð.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með eldri innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi:  Gott barnaherbergi með útgengt á skjólgóðar suðaustur svalir. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið var endurnýjað árið 2014. Stór handlaug með hvítum skáp, innbyggður veggskápur, upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og í kringum baðkar, veggfóður á einum vegg.

Sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjóla- og vagnageymslu.

Framkvæmdir og viðhald íbúðarinnar samkvæmt seljanda:
  • 2006:  Öll íbúðin gerð upp nema baðherbergið. Veggir lagaðir og málaðir eða veggfóðraðir. Nýtt gegnheilt          viðarparket (hvíttaður askur), háir hvítlakkaðir gólflistar. Allir gluggar, hurðar og karmar pússaðir upp og hvítlakkaðir. Eldhússkápar hvítlakkaðir, nýjar höldur. Rósettur fyrir ljósakrónur settar í loftið.
  • 2014:  Baðherbergi gert upp og endurnýjað; flísalagt, málað, veggfóðrað, nýr vaskur, vaskaskápur, vegghillur og upphengt klósett. Nýir loftlistar, innbyggður veggskápur pússaður og hvítlakkaður. Ný framhlið á baðkar. Nýtt rafmagn dregið í hluta af íbúðinni.
  • 2021:  Ný eldavél í eldhús og nýr krani við eldhúsvask.
  • 2026:  Ofnar yfirfarnir og nýr þrýstijafnari.
 Viðhaldssaga hússins samkvæmt seljanda:       
  • 2004:  Sameign innanhúss, ný teppi og nýir gluggar í stigagang, allt málað, nýir póstkassar.
  • 2009 – 2010:  Nýtt þak. Steypu- og múrviðgerðir. Viðgerðir og málun á gluggum og svalahurðum. Svalir málaðar og sílanbaðaðar. Útihurð hreinsuð og olíuborin.
  • 2015:  Ástandsskoðun og ástandsskýrsla unnin af Verksýn ehf.
  • 2016–2017:  Skipt um hluta af gluggum, gert við aðra og málað. Gert við sprungur á útveggjum, snjógildrur settar á þak götumegin, dren framkvæmt garðmegin, rör fóðruð út í götu og garður endurbættur. Þökur lagðar, gróðursett tré, hellulagt í garði og innkeyrslu, sett hlið á garð. Flokkunartunnur settar upp.
  • 2022–2023:  Skipt um alla glugga sem eftir voru, sprungur yfirfarnar og viðgerðar, hús steinað og gluggar málaðir. Svalir málaðar. Nýjar bakdyr settar út í garð.
  • 2023:  Nýir rafmagnsmælar og ný rafmagnstafla í sameign.
  • 2026:  Sprunguviðgerðir og málun á steinvegg umhverfis lóð.
  • 2026:  Farið yfir alla ofna í sameign og íbúðum. Gert við það sem þarfnaðist viðgerðar. Háaloft hreinsað, loftun bætt með sex nýjum lofttúðum, gengið frá lýsingu og rafmagni. Loftnet á þaki tekin niður. Skipt um dyrasímakerfi og nýir dyrasímar settir í allar íbúðir.
Eignin Bræðraborgarstígur 13 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 200-1507, birt stærð 84,7m², íbúð  81,6 m² og geymsla 3,1 m².

Eignin er á eftirsóttum stað í rólegu og grónu íbúðarhverfi í hjarta gamla Vesturbæjarins, þar sem stutt er í miðbæinn, gömlu höfnina, leik- og grunnskóla, verslun, veitingastaði, sundlaug og alla helstu þjónustu. Aðeins 7 mínútna ganga niður í miðbæ og 5 mínútur niður að gömlu höfninni. Grandi er einnig stutt frá með Bónus, Krónunni, Nettó, Jysk, Elko og Byko. Svo eru tvö bestu kaffihús bæjarins í göngufæri, Hygge á Seljavegi og Kaffi Vest í hina áttina. Þar er líka að finna Vesturbæjarlaug og Melabúðina.
 
Nánari upplýsingar veita:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861 6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Furugrund 22
Skoða eignina Furugrund 22
Furugrund 22
200 Kópavogur
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 206
móa_vefur (3).png
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 206
101 Reykjavík
93.7 m2
Fjölbýlishús
332
1020 þ.kr./m2
95.600.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 308
móa_vefur (20).jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 308
101 Reykjavík
94.5 m2
Fjölbýlishús
312
1063 þ.kr./m2
100.500.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 206
09-220621_V64_V3-Kitchen_02ver_view03.jpg
Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 206
101 Reykjavík
92.1 m2
Fjölbýlishús
312
1097 þ.kr./m2
101.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin