Kjöreign fasteignasala kynnir: steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með 2ja herb. aukaíbúð á neðri hæðinni og innbyggðum 3ja bíla bílskúr við Funafold 71, 112 R. Sömu eigendur frá upphafi. Til afhendingar við kaupsamning.
Lýsing á húsinu. Húsið er reisulegt, byggt eftir teikningum Kjartans Sveinssonar og stendur á hornlóð. Húsið er í mjög góðu ástandi að utanverðu. Þakið er komið að málun. Lóðin er fullfrágengin með góðum bílastæðum, gróðri og sólpalli á baklóðinni. Á neðri hæðinni er mjög rúmgóður tvöfaldur bílskúr og 2ja herbergja íbúð með sér inngangi. Inngangur upp á efri hæðina er af neðri hæðinni um forstofu og hol innaf forstofunni.
Lýsing, efri hæðin. Birt stærð er 204,3 fm. Forstofa og hol á neðri hæðinni. Góður bogadreginn stigi með gluggum í stigahúsinu. Hæðin skiptist í rúmgóðar stofur, svalir, eldhús, þvottahús, búr, gestasnyrtingu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, skrifstofu og bókaherbergi.
Lýsing, neðri hæðin, íbúð. Birt stærð íbúðar er 60,6 fm. og birt stærð bílskúrs er 82,7 fm. Tveggja herbergja íbúð, sem skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þvottahús, svefnherbergi og baðherbergi. Rúmgóður tvöfaldur bílskúr.
Nánari lýsing, efri hæðin. Flísalögð forstofa og innaf er teppalagt hol. Góður bogadreginn teppalagður stigi upp á efri hæðina með viðarhandriði. Rúmgóðar stofur og er hurð úr borðstofunni út á stórar vínkilsvalir. Innaf stofunum er gengið inn í sjónvarpsherbergi og við hliðina á sjónvarpsherberginu er skrifstofa. Hægt er að loka þessum herbergjum og nýta þau sem svefnherbergi. Þessi hluti hæðarinnar er teppalagður. Eldhúsið er með borðkrók og vandaðri eldri viðarinnréttingu. Á eldhúsgólfinu eru flísar. Innaf eldhúsinu er þvottahús með gluggum og innaf því er búr. Þvottahúsið er með gólfflísum. Flísalagt gestabaðherbergi. Á svefnherbergisganginum er rúmgott svefnherbergi og rúmgott hjónaherbergi með skáp. Milli herbergjanna er baðherbergi með gluggum. Baðherbergið er allt flísalagt með sturtuklefa og baðkeri. Innrétting er í baðherberginu. Úr svefnherbergisganginum er gengið út á steyptan pall og þaðan út á timbursólpall. Parket er á eldhúsinu og herbergjunum í svefnherbergisálmunni.
Nánari lýsing, neðri hæðin, íbúðin. Sér inngangur er í íbúðina. Flísalögð forstofa með skáp. Flísalagt baðherbergi með baðkeri og innréttingu. Eldhús með hvítri innréttingu og korki á gólfum. Þvottahús er innaf eldhúsinu með glugga og gólfflísum. Björt stofa. Hjónaherbergi með glugga og lausum skáp. Á gólfum er harðparket.
Nánari lýsing, bílskúrinn. Bílskúrinn er með tveimur innkeyrsluhurðum og hliðarhurð. Góðir gluggar eru á útvegg í bílskúrnum. Innaf bílskúrnum er geymsla og snyrting í rými, sem er ekki inn í birtri stærð hússins.
Stærðir; Birtar stærðir eru; Íbúð á neðri hæð er skráð 60,6 fm., efri hæðin er skráð 179,9 fm., neðri hæð (hluti af efri hæðinn) er skráð 24,4 fm. og bílskúr er skráður 82,7 fm. Birt heildarstærð er 347,6 fm.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf., í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is
Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða á dan@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða á asta@kjoreign.is