Borg fasteignasala kynnir mjög fallega og vel skipulagða 4
ja herbergja íbúð 121,4 fm með tveimur garðsvölum við Holtsveg 2 í Garðabæ.
Íbúðin er á 3. hæð, merkt 01-0301. Birt stærð samtals 121,4 fm.
Eignin skiptist í alrými, hjónaherbergi, 2 barnaherbergi, baðherbergi og geymslu.
Af stigagangi er gengið inn í hol sem tengir saman svefnherbergin og alrými íbúðarinnar.
Alrými inniheldur stofu og eldhús, alls 37.5 fm.Í holi/gangi er mikið skápapláss.
Eldhúsið er veglegt með góðri eldhúseyju, ásamt miklu skápa- og vinnuplássi. Innréttingar eru sérsmíðaðar og frá Formus. Útgengt er út á svalir frá stofu og eldhúsi.
Stofan er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt á
svalir sem snúa til suðvesturs. Þar er frábær staður til að drekka morgunkaffið.
Íbúðin hefur að geyma þrjú svefnherbergi.
Hjónaherbergið er rúmgott (17,7 fm) og inn af því er gott
fataherbergi.
Barnaherbergin eru bæði rúmgóð (9,7 fm annarsvegar hinsvegar 8,6 fm). og björt og vel búin skápum.
Baðherbergið er veglegt, með upphengdu salerni og „walk-in“ sturtu. Veggir og gólf eru flísalögð. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Baðinnréttingar eru hvítar sprautulakkaðar MDF með mattri áferð.
Að utan lítur húsið vel út, sameignin klædd að utan en annað einangrað að innan. Stigagangur er snyrtilegur og vel um genginn.
Annað:-Auðvelt er að útbúa svalalokun.
-Íbúðin er ný máluð.
-Eldhúsinnrétting og fataskápar eru með dökkri viðarharðklæðningu frá Egger með mattri áferð, innbyggð uppþvottavél með framhlið úr sama efni. Allar brautir og lamir eru með ljúflokun frá Blum.
Innihurðir eru spónlagðar.
Lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Allar upplýsingar um eignina veitir Héðinn B Ásbjörnsson lögg. fasteignasali 8484806 eða á hedinn@fastborg.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% ( 1,6% lögaðili ) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.