Nýtt á sölu! Afar falleg og rúmgóð 3ja herb. íbúð með svölum til suðurs og þvottaherbergi inn af íbúðar.LIND Fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega 99,5 fermetra 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð við Sunnusmára 7 í Kópavogi. Virkilega rúmgott alrými þar sem auðvelt er að koma fyrir borðstofu og setustofu. Þvottaherbergi er staðsett inn af íbúð og sérgeymsla á jarðhæð sem er 11,2 fermetrar að stærð. Útgengi úr stofu á suðursvalir. Íbúðin er með nýlegu harðparketi á gólfum. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.
Húsið er steinsteypt og byggt af ÞG Verk. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðurs/suðvesturs með malbikuðum gestastæðum.
Nánari lýsing:Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á góðar svalir til suðurs úr stofu.
Anddyri: Með harðparketi og fataskápum frá GKS.
Svefnherbergi: Eru tvö talsins, bæði með harðparketi og fataskápum frá GKS.
Stofa: Er með harðparketi á gólfi og rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Opin við eldhús og gluggar til suðurs.
Svalir: Snúa til suðurs og viðarfjölum á svalagólfi. Möguleiki er að setja upp svalalokun á svölum.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og eldhúsinnréttingu frá Nobilia (GKS) og öllum eldhústækjum (Blástursofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél, innbyggður kæliskápur með frysti og eyjuháfur).
Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og útloftun.
Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.
Byggingaraðili hússins er ÞG Verk sem hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði.
BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS