Fasteignaleitin
Opið hús:13. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 1. sept. 2026

Eirhöfði 7a (401)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
188.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
215.000.000 kr.
Fermetraverð
1.140.584 kr./m2
Brunabótamat
107.770.000 kr.
https://miklaborg.is
Byggt 2025
4. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534533
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir: ÞÍN LEIÐ AÐ NÝRRI ÍBÚÐ - AÐEINS 10% ÚTBORGUN UMBRA20

Íbúð 401 er 4ra herbergja vel skipulögð íbúð á 4. hæð með stórum þaksvölum, bílskúr og tveimur stæðum í bílakjallara. Glæsilegt heimili með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III, Quartz borðplötum, Miele tækjum og GROHE blöndunartækjum. Flísalagt baðherbergi, vélræn loftræsting og vönduð hönnun Rut Kára skapa einstaka samsetningu þæginda og gæða. Þrjú svefnherbergi, tvær stofur, baðherbergi og gestasnyrting ásamt 63,4 fm þaksvölum með frábæru útsýni til borgarinnar, Snæfellsjökuls og víðar. Einstök eign. Litaþema er Kasmír grár. Íbúðin afhendist fullbúinn án megingólfefna.

Sjá nánar www.eirhofdi.is. Hágæða íbúð hönnuð af Rut Kára með glæsilegum innréttingum.

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is


NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með fataskápum er ná upp í loft.

Hjónaherbergi: er með fataskápum er ná upp í loft. Hjónaherbergið er sérstaklega rúmgott.

Svefnherbergin: Tvö svefnherbergi með fataskápum er ná upp í loft.

Eldhús: Með eldunareyju og er opin inn í stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Borðplötur eru úr Quartz frá Technistone. Eldhús skilast með veggofni og 80 cm breiðu span-helluborði. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: stofa, borðstofa í björtu og opnu alrými með útgengi á stórar þaksvalir.

Þaksvalir: 63 fm þaksvalir út frá stofu með frábæru útsýni til borgarinnar, Snæfellsjökuls og víðar.

Baðherbergi: er flísalagt með gæðaflísum, sturtu og með vegghengdri salernisskál frá GROHE með mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki eru frá GROHE.

Gestasalerni: er með vegghengdri salernisskál frá GROHE með mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki frá GROHE.

Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.

Geymsla: er 8,7 fm

Bílskúr: 25,8 fm bílskúr í lokaðri bílgeymslu

Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Númer B08.

Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur. Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.

Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!

Nánari upplýsingar veita:

Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Íris Anna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is


Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustabryggja 25
Bílastæði
Skoða eignina Naustabryggja 25
Naustabryggja 25
110 Reykjavík
98,8 m2
Fjölbýlishús
312
723 þ.kr./m2
71.400.000 kr.
Skoða eignina Rofabær 7
Bílastæði
Skoða eignina Rofabær 7
Rofabær 7
110 Reykjavík
112,8 m2
Fjölbýlishús
312
840 þ.kr./m2
94.800.000 kr.
Skoða eignina Úlfarsbraut 90
Efsta hæð
Opið hús:13. okt. kl 18:00-18:30
Úlfarsbraut 90 mynd 2.jpg
Skoða eignina Úlfarsbraut 90
Úlfarsbraut 90
113 Reykjavík
111,8 m2
Fjölbýlishús
413
818 þ.kr./m2
91.500.000 kr.
Skoða eignina Seiðakvísl 32
Á einni hæð
Skoða eignina Seiðakvísl 32
Seiðakvísl 32
110 Reykjavík
185,7 m2
Einbýlishús
513
942 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin