Hraunhamar fasteginasala kynnir: Falleg og björt þriggja herbergja 84,4 fm. íbúð á 1. hæð á vinsælum stað í fjölbýli við Sléttahraun 25 Hafnarfirði. Frábær staðsetning, miðsvæðis og örstutt í skóla, verslanir, þjónustu, stofnbrautir ofl. Íbúðin sjálf er skráð 77,8 fm. og skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, björt stofa- og borðstofa með útgengt út á s-svalir, baðherbergi og sameiginlegt þvottahús á sömu hæð með þægilegu aðgengi.
Sérgeymsla 6,6 fm. er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Húsið var sprunguviðgert og málað 2019 og einnig var skipt um
glugga og gler að hluta. Skipt var um teppi í
sameign og málað 2023. Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð með opnum fataskáp.
Eldhús er flísalagt með fallegri hvítri innréttingu, flísar á milli skápa. Helluborð og ofn í vinnuhæð. Uppþvottavél og ísskápur geta fylgt. Stór og bjartur opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð og opnir fataskápar eru í hjónaherbergi.
Harðparket á gólfumStofa- og borðstofa er í opnu og björtu rými með útgengt út á suðvestur svalir. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með sturtubaðkari og hvítri vaskinnréttingu. Góður opnanlegur gluggi og flísalagt er í hólf og gólf.
Sameiginlegt
þvottaherbergi á hverri hæð og því aðeins 3 íbúðir með hvert þvottaherbergi.
Aðgengi íbúðar að þvottaherbergi á hæð er mjög gott.
Sérgeymsla er staðsett í sameign um 6,6 fm. með glugga og rafmagni og einnig er hjóla- og vagnageymsla staðsett í sameign.
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn með leiktækjum.
Skv. eignaskiptayfirlýsingu fylgir íbúðinni réttur til byggingar bílskúrs.Samkv. uppl. seljenda: Ofnar íbúðar voru yfirfarnir og skipt um ofn í barnaherbergi. Skipt hefur verið um rafmagnstengla og rofa að hluta. Húsið var
sprunguviðgert og málað 2019 og einnig var skipt um glugga og gler að hluta.
Skipt var um teppi í sameign og málað 2023. Þak var yfirfarið 2018 og talið í lagi. Nýlegar innihurðar síðan 2024. Nýlegt harðparket síðan 2024. Nýlegur forstofuskápur síðan 2024.Þetta er áhugaverð góð eign miðsvæðis í bænum sem vert er að skoða frekar. !Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.